Kæru foreldrar/forráðamenn.
Við leggjum nú sérstaka áherslu á hreinlæti s.s. reglulegan handþvott og notkun handspritts í leikskólanum með það fyrir augum að fyrirbyggja smithættu.
Við viljum benda ykkur á mikilvægar upplýsingar frá Embætti landlæknis um hvernig forðast eigi smit kórónuveirunnar Covid-19 og hvað eigi að gera ef grunur vaknar um smit.
Einnig er bent sérstaklega á lykilsímanúmerið 1700, sem allir eiga að hringja í ef áhyggjur af smiti eru til staðar.
Komið er inn á að vefir almannavarna og embættis landlæknis eru bestu upplýsingalindirnar um þessi mál.
Stjórnsýslan og heilbrigðisyfirvöld vinna nú kappsamlega gegn útbreiðslu veirunnar og viljum við leggja áherslu á að farið sé að tilmælum sóttvarnalæknis og annarra sérfræðinga hvað snertir hreinlæti, sýkingarvarnir, sóttkví og samstöðu.
Hér má finna upplýsingar sem ætlaðar eru fyrir börn og ungmenni, https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item39277/Grunnupplysingar-um-koronaveiruna-fyrir-born-og-ungmenni.
Hér er fréttatilkynning frá Embætti landlæknis vegna kóronaveirunnar þar sem m.a. koma fram leiðbeiningar vegna ferðalaga, https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item39279/frettatilkynning-vegna-koronaveirunnar-covid-19-28022020.