Fréttir
Gullkorn
12. nóvember 2004
Kamilla Birta: Veistu hver á afmæli í desember? Inga kennari: Nei, hver? Kamilla Birta: Nú auðvitað Jesú!

Öll gullkorn
 
  • SOS

    27. mars 2006

       27.3.2006
    Jákvæðir leikskólakennarar í Reykjanesbæ 
    Leikskólakennarar í Reykjanesbæ sem sótt hafa námskeiðið SOS-hjálp fyrir foreldra hrósa um það bil helmingi oftar fyrir góða hegðun barna en leikskólakennarar sem ekki hafa sótt námskeiði.

    Þetta kemur fram í rannsókn sem unnin var sem B.A. verkefni í sálfræði af Sigurði Þorsteini Þorsteinssyni.

    Leikskólarnir í Reykjanesbæ komu einnig sérstaklega vel út í samanburði á svokölluðum þríhliðaskilmála sem tekur til fyrirmæla leikskólakennara, hegðunar barnsins út frá þeim fyrirmælum sem gefin voru, og viðbragða leikskólakennarans  í kjölfar hegðunar barnsins. Á þessum mælikvarða  stóðu leikskólakennarar  í Reykjanesbæ sig hlutfallslega tvisvar til þrisvar sinnum betur en leikskólakennararnir í sambanburðarleikskólunum.

    Í rannsókninni voru starfsmenn á  tveimur leikskólanna í Reykjanesbæ bornir saman við starfsmenn á tveimur leikskólum á höfuðborgarsvæðinu.

    Að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar yfirsálfræðings hjá Reykjanesbæ, er ánægjulegt að fá vísbendingar um að um kerfisbundinn jákvæðan mun virðist vera að ræða á þeim leikskólakennurum sem hafa tekið þátt í SOS - námskeiðunum og þeim sem ekki hafa gert það, þar sem meginþorri leikskólakennara í Reykjanesbæ og nágrannabyggðarlögum hafi sótt námskeiðið.

    Hins vegar sé ljóst að fara þurfi varlega í að álykta um of út frá rannsókn sem þessari, þar sem einungis sé um upplýsingar frá tveimur leikskólum að ræða og þennan mun þurfi að rannsaka frekar. Þetta eru samt auðvitað góðar fréttir fyrir börn og uppalendur í Reykjanesbæ og gefa okkur vísbendingar um að við séum á réttri leið sagði Gylfi Jón að lokum
     
     
     



    Til baka

Viðburðadagatal
Viðburðir