Um þessar mundir eru foreldrar að fá greiðsluseðla frá Foreldrafélagi Vesturbergs. Árgjaldið er 2.500 kr. og er fyrir árið 2011, árgjald fyrir árið 2012 kemur síðar á árinu. Við bendum á að foreldrar eru sjálfkrafa meðlimir í foreldrafélagi Vesturbergs um leiða og börn þeirra hefja skólagöngu hér. Það er börnunum til góðs að greiða gjaldið því fyrir peningana eru haldin jólaböll, farið í vorferðir, ýmsir styrkir til leikskólans til dæmis hefur foreldrafélagið styrkt leikskólann þegar leikrit eru fengin, krakkahestar og fleira. Athugið að eitt gjald er á hverja fjölskyldu kr. 2.500.