2012
9. janúar 2012
Gleðilegt ár kæru velunnarar Vesturbergs, árið 2012 leggst afar vel í okkur hér í Vesturbergi.
Starfið er komið í fastar skorður eftir jól og áramót og sýnist okkur að allir séu fegnir að komast aftur í rútínuna. Pennahópur, hópasamvera og íþróttir er komið á fullt og allir fullir af áhuga. Lestrar- og skriftarnámskeið fyrir Pennahóp hefst mánudaginn 16. janúar, kynning fyrir foreldra er miðvikudaginn 11. janúar kl. 8.15. Endilega hafið samband ef eitthvað er óljóst.
Bestu kveðjur, kennarar í Vesturbergi.
Til baka