Heil og sæl, við erum komin til starfa á ný. Úthvíld og endurnærð eftir gott sumarfrí. Þessa dagana eru að stíga sín fyrstu skref hér í Vesturbergi nýir nemendur og bjóðum við þau öll hjartanlega velkomin og gengur afskaplega vel að setja þau inn í starf okkar. Nokkrar breytingar verða á starfsfólki en Ragna Stína hættir hjá okkur nú á fimmtudaginn og hefur leikskólakennaranám við KHÍ. Jóna Hrefna kemur til með að starfa frá 8.00 til 12.45. Allar líkur er á því að nýr starfsmaður hefji störf hjá okkur nú á næstu dögum en það er hún Sigurborg og við segjum nánar frá því þegar nær dregur. Nú er verið að vinna á fullu í áætlanagerð fyrir veturinn og kynnum við það nánar síðar.