Sæl, við vildum láta vita að upp hefur komið lús hjá einu barni í leikskólanum. Við hvetjum foreldra til að fylgjast vel með og athuga reglulega hvort þessi leiði vágestur hafið komist í hár barna ykkar. Hér http://www.landlaeknir.is/Pages/527 getið þið nálgast upplýsingar um lúsina en einnig í apótekum. Ekkert er hættulegt við lúsina og fer hún ekki í manngreiningarálit, allir geta fengið lús, hún er einungis til leiðinda og þurfa foreldrar að vera duglegir við að kemba og fylgjast með.
Kveðjur, kennarar í Vesturbergi.