Fréttir
Gullkorn
12.september 2007
Gunnhildur var að sulla í vaskinum, þegar hún var að klæða sig þá strauk hún magann og axlir og handleggi og sagði svo "Ég er sko kroppalína".

Öll gullkorn
 
  • Allt af stað

    1. september 2010

    Þá er allt að komast í fastar horfur hér í Vesturbergi, aðlögun nýrra barna gengur vel og virkilega gaman að fá ný börn í hópinn. Hópasamveran er farin af stað og er nú tvisvar í viku sem er mjög spennandi. Örlitlar starfsmannabreytingar hafa átt sér stað þau Halldóra og Jói eru byrjuð í skóla og Hulda og Ester eru að fjölga mannkyninu, við óskum þeim öllum velfarnaðar í framtíðinni. Í stað þeirra eru komin Lóa sem er í Keflavík, Eygló er einnig í Keflavík. Elín Óla er í Vinaminni og svo hún Tinna Björg sem er í Gróf og hóf störf strax eftir sumarfrí. Þann 1. september byrjaði svo gamalreyndur starfsmaður hann Þröstur aftur störf og erum við glöð að fá hann aftur. Við bjóðum nýju starfsmennina innilega velkomin til starfa og vonum að þau njóti sín hjá okkur.  



    Til baka

Viðburðadagatal
Viðburðir