Í dag var haldin Listahátíð Vesturbergs, sem heppnaðist með eindæmum vel. Þar var bókahátíð þar sem allir hóparnir kynntu sín verkefni með glæsibrag og elstu börn leikskólans útskrifuð. Að því loknu var opnuð glæsileg listasýning barnanna, þar er að finna verk sem hóparnir hafa unnið í vetur ásamt fleiri verkum, þetta er sölusýning og eru einstaklingsverkin seld á 300 kr en óskað er eftir tilboðum í hópverkefnin :)Allur ágóði sýningarinnar fer í ferðasjóð útskriftarhóps Vesturbergs. Sýningin verður opin miðvikudag - sunnudag frá 13-17 alla dagana og hvetjum við alla til að koma og skoða þessa frábæru sýningu.