Fréttir
Gullkorn
Nóvember 2009
Erla prestur kom í heimsókn og var að segja okkur sögu og sýna okkur myndir í Kiddasal. Tómas T. var að velta sér um á gólfinu. Hafdís rétti hann við, benti á Erlu og sagði: sjáðu konuna hvað er hún að segja? Tómas T.: hún er að segja SATT (mjög ákveðinn)

Öll gullkorn
 
  • Velkomin!!!

    20. ágúst 2009

    Velkomin til starfa öll sem eitt! Þá er annað skólaár í nýju húsi að hefjast og erum við afar spennt því síðasta ár gekk svo ljómandi vel. Aðlögun nýrra nemenda gengur vel en búast má við að aðlögun verði að mestu út ágústmánuð. Það verða smá breytingar hjá okkur í kennarahópnum, nú þegar hefur Heiðrún Rós hafið störf en hún er íþróttafræðingur að mennt og sér alfarið um alla hreyfingu í húsinu. Allir nemendur fara í ákveðnar hreyfistundir en hafa svo aðgang að Kiddasal þess á milli, Heiðrún starfar í salnum og fyrir hádegi er Elín María og eftir hádegi er það Ester sem starfar í Kiddasal ásamt Heiðrúnu. Þröstur sem hefur verið i Keflavík undanfarið ár, ætlar að fara í nám og lætur af störfum við komum til með að sakna hans mikið, í hans stað höfum við ráðið Kristbjörgu og hún mun hefja störf 24. ágúst, hennar vinnutími er frá 8.00-16.00, við bjóðum hana velkomna til starfa.

    Til baka

Viðburðadagatal
Viðburðir