Listahátíð Vesturbergs verður haldin 4. maí næstkomandi kl. 10.30, í Listasafni Reykjanesbæjar. Hátíðin hefst á bókahátíð þar sem samveruhópar kynna bók sína, í tengslum við verkefnið Lestrarátak í Reykjanesbæ. Útskrift elstu nemenda Vesturbergs verður svo með hátíðlegri athöfn. Listasýning verður opnuð í Bíósal Duushúsa þar sem listaverk eftir nemendur verða til sýnis og sölu. Ágóðinn verður lagður í ferðasjóð sem nýttur verður til útskriftarferðar sem farin er ár hvert. Allir eru velkomnir á meðan að húsrúm leyfir. Til baka