Fréttir
Gullkorn
17.september 2009
Leikskólahópur var í göngu, þegar þau koma auga á sígarettustubb á gangstéttinni. Ragna Stína: Hvað er þetta? börnin hugsa sig um og stara á gripinn Silja Kolbrún: ...æ þetta er svona til að blása í.

Öll gullkorn
 
  • afmælisvika

    14. apríl 2005

    Jæja þá er hin mikla afmælisvika senn að verða búin. Það er búið að vera rosalega gaman í þessari viku því það áttu þrír krakkar afmæli. Sara Jenný átti afmæli á mánudaginn 11.apríl og hún varð 5 ára. Hún er sko orðin alveg rosalega stór stelpan. Hún bauð upp á partý og frábærar veitingar.

        

    Á þriðjudaginn 12.apríl átti svo hún Saga afmæli og hún varð líka 5 ára. Hún stækkaði sko alveg heilmikið og að vanda var haldin hin fínasta veisla í Gróf og boðið upp á ýmsar kræsingar.

       

    Á miðvikudaginn 13.apríl átti svo hann Þröstur Ingi afmæli. Hann er sko orðinn 6 ára strákurinn og er þess vegna alveg að fara í skóla. Hann bauð upp á veislu og góðgæti í salnum. Það var rosa gaman. En það var líka svo skemmtilegt að hún Ragnheiður kennari átti líka afmæli þennan dag og hún var líka með smá veitingar í salnum fyrir krakkana. Hún er aðeins eldri en Þröstur og svolítið stærri.  

       



    Til baka

Viðburðadagatal
Viðburðir