Í gær þann 22. mars átti hún Berglind Ósk afmæli, hún er nú orðin 5 ára. Það var svo rosalega gott veður í gær að við héldum afmælið bara úti. Það var æðislegt, við fengum ís og sungum helling. Þegar afmælið hennar var að verða búið kom svo óvæntur gestur. Hún Margrét Rún sem var einu sinni í Vesturbergi kom í heimsókn, við vorum rosalega glöð að sjá hana, og hún hefur dafnað vel í Danmörku. Til baka