Jæja nú er mikið að skoða á heimasíðunni, búin að setja inn gullkorn, myndir og taka út það sem þurfti að taka út. Ég fann gömul gullkorn sem ekki hafa verið birt á netinu og ákvað að leyfa þeim að fljóta inn á síðuna núna endilega kíkið á þau. Starfsfólk leikskólans er komið inn á síðuna og ýmislegt fleira endilega kíkið í alla króka og kima. Nú fer að líða að því að ég taki út gömul myndaalbúm og vil ég því benda foreldrum á að kíkja í albúmin og vista hjá sér þær myndir sem þið viljið eiga ef einhverjar eru.
Kær kveðja Ragna Stína.