Matseðill
Gullkorn
1.júní 2010
Nokkrir guttar úti að slá. Aron Örn: Það eru kallar í leikskólanum Heiðrún: Kallar??? Ragna Stína: Já, nokkrir 18ára guttar Aðeins seinna fer Brynjar Már út í glugga B.M.: Hey, þessi 18ára gutti vinkaði mér. Hann var með andlit alveg eins og Björgvin Frans

Öll gullkorn
 

Matseðill mánaðarins

Markmið okkar


Reka gott leikskólamötuneyti þar sem börnunum er boðið uppá heilsusamlegan og fjölbreyttan mat og drykk í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um hollt mataræði. Börnin hafi góða aðstöðu í matartímum og nægan tíma til að borða.

Við ætlum að
. Nota handbók um leikskólamötuneyti frá Lýðheilsustöðinni
. Fiskur tvisvar til þrisvar í viku
. Fjölbreyttur matur
. Unnin matur er ekki notaður
. Bjóða upp á ávexti eða grænmeti tvisvar á dag
. Bjóða uppá grænmeti með hádegismat
. Bjóða sem oftast gróft brauð
. Draga úr sykruðum mjólkurvörum og að drykkjarvatn sé aðgengilegt.

Morgunmatur:
Cheerios, cornflakes, mjólk, súrmjólk og AB-mjólk, hafragrautur 3svar í viku, og með honum eru alltaf ávextir bananar, epli og.fl.ásamt rúsinum og döðlum Öllum börnum er boðið upp á Lýsi.

Nónhressing:
Heilhveitibrauð, (brauðin eru flest bökuð hér á staðnum og aðeins er notað eðal hráefni), kjötálegg (skinka, spægipylsa, malakoff, annað álegg s.s.ostur, mysingur, kæfa, gúrkur, tómatar, bananar.) mjólk, ávaxtasafar (mjög sjaldan). Á föstudögum eftir hádegi er ristað brauð.

Matráðir í Vesturbergi eru Bogga og Helena

*Athugið að matseðlar geta breyst fyrirvara laust. 

Vikan 2.jan-6.jan 2012

Vikan 9.jan.-13.jan. 2012

Vikan 16.jan. - 20.jan. 2012

Vikan 23.jan. - 27.jan. 2012

Vikan 30.jan. - 3.feb. 2012

Vikan 6.feb. - 10.feb. 2012

Vikan 13.feb. - 17.feb. 2012

Viðburðadagatal
Viðburðir