Gullkorn
Gullkorn
27.01.2005
Kamilla Birta: Það slitnaði eitthvað í líkamanum á ömmu minni. Hún er í gifsi. Það slitnaði "hásíðan!" = hásinin

Öll gullkorn
 
4.nóvember 2011

Tómas: Hey Heiðrún, hvar eru flækjurnar þínar?

(Heiðrún kennari var á hækjum í vinunni)



31.okt 2011

Þóranna Reyn var að ýta í Jóhann Gauta á útisvæði.

kennari: Þetta er alveg bannað Þóranna, hvað segir maður ef maður er búin að meiða?

Þóranna Reyn við Jóhann "Gjörðu svo vel."



17.okt 2011

Bjarki Freyr:  ég get ekki farið út!

Kennari: Af hverju?

B.F. Af því að afi minn er með hiksta!



10.nóv. 2011

útisvæði:

Karitas kennari:  Gabríel Aron, þú ert alveg eins og Fannar frændi þinn.

Heiða Lú kennari: Já og alveg eins og pabbi sinn.

Gabríel Aron: Nei! Það eru allir að segja að ég sé eins og mamma, pabbi, Heiðrún, Fannar og fleirri.

"Ég veit ekki einu sinn hver ég er!"



27.okt 2011

Útisvæði.

Kolla kennari: Ég er Kolla tröllastelpa!

Pétur Breki:  Baulaðu þá Búkolla mín.



24.10.2011

Helga Margrét: "Amma Gunna er bara á himninum."

Karitas kennari: "Já en hvað er hún að gera þar?"

Helga M: "Hún er bara að skipta um nærbrækur, Guð er örugglega að hjálpa henni.

Hún á svo rosa strórar nærbrækur.



Nóvember 2011

Vala er komin út í pollagallanum en lá á hurðinni að utanverður.

Hafdís kennari: Vala hvað ertu að gera?

Vala: Ég er að halda hurðinni hún Inga Dís er að reyna að komast út allsber....(smá hik) á sokkunum....

og í bolnum....og buxunum.



1.nóvember 2011

Birnir segir Bogga (kennari) sjáðu og kreistir hökuna.

Bogga: Hvað er þetta?

Birnir: Sjáðu þetta er skegg!



31.október 2011

Magnús Máni og Ómar voru að lita í jólasveina litabók þegar annar segir, veistu afhverju jólasveinarnir koma

ekki út á sumrin?  Já sagði hinn, því hann er allur í snjó og þá bráðnar hann.

 



Október 2011

Davíð Már og Bjarki Freyr úti að róla.

Bjarki: Það er byrjað að rigna!

Davíð: Guð er bara að gráta.

Bjarki: Nú? Afhverju er hann að gráta?

Davíð: Því að það er til svo mikið vont fólk í heiminum.



Október 2011

Tómas:  Þið gerið allt saman útaf því að þið eruð tvíburar! (Hildur og Hekla)  Þið ætlið að gifta ykkur saman! (hlær stríðnislega)

Hekla: Nei það er ekkert hægt, þá yrði enginn pabbi.  Það er ekkert hægt að giftast kona og kona.

Tómas, Ómar og Ólafur: Það er sko víst hægt!

Kristín Björg: Það er hægt að giftast karl og kona og líka kona og kona.

Þá snérist Heklu hugur: "Já það er alveg hægt."



16.september 2011

Pétur Breki:  Ég skal sko ekki fara út að leika með þessum óþokka!.

Karitas kennari: "Hvaða óþokka?"

P.B. "Honum Tómasi!"

Þá var Tómas nýbúin að henda húfunni hans efst upp á hólfin.



Október 2011

Sædís situr fúl á svið við borð.

Sigurborg kennari:  Hvar er brosið þitt Sædís.

Sædís: Það er í London.

Sædís býr í London og heimsækir okkur í fríinu.



10.nóvember 2011

Sigurður vildi ekki fara í úlpunni út.  Hafdís kennari: Þú verður þá að fara í þykka peysu.

S. En ég er bara með stingu peysuna.

H. Jæja þá ferðu bara í úlpuna.

S. En ég vill fara í stingu peysuna, þegar ég er búinn að vera í smá stund þá hættir hún að stinga, þá er hún búin að frjósa.



7.október 2011

Tómas:  hvað ætli Ísak sé að læra í Myllubakkaskóla núna?

Harpa kennari: Já, hvað heldur þú?

Tómas: Hann heldur að þetta sé bara bakkaskóli, kannski eiga allir bara að bakka í Myllubakkaskóla!



5.okt 2011
Við vorum að spila lottó, Alexavier fór í miðju spili, kom svo eftir nokkrar mínútur. Kennarinn segir þá, það má ekki hlaupa svona í burtu meðan við spilum. Þá segir Helga Margrét: Nei bara labba.

23.ágúst 2011

Pétur Breki kom inn eftir örstutta útiveru og var farinn að leika við Magnús M.

Eygló: Heyrðu Pétur ertu kominn inn, þú varst ekki nema í 5 mín. úti?

Hafdís kom í því og talaði um það sama. 

Pétur: ég er búin að vera úti.

Hafdís: en þú varst ekki nema í 5 mín, svo fór Hafdís en Eygló heyrði Magnús segja  "þetta er allt í lagi hún er farin en þú verður að passa þig að vera í 6 mínútur næst".



Ágúst 2011

Við matarborðið, allir að borða skyr.

Viktor M og Viktoría voru bæði með skyr lengst út á kinnar.

Viktor leit á Viktoríu og sagði hneykslaður: "Þú ert skítugur í framan"



Ágúst 2011

Daníel Örn: Pabbi minn þurfti að fara í viðgerð.

Hafdís: Meinarðu ekki aðger?

Daníel Örn: Nei viðgerð, það þurfti að taka úr honum botnlangann.



5.ágúst 2011

Bogga og Daníel voru að ganga frá eftir hvíld þá segir D veistu hvernig útlenskur Hafnfirðingur er? Nei segir B.

Hann er svona segir D og gengur um með tvo púða á hausnum.



19.maí 2011

Bergþóra og Sylvía Rán sátu og teiknuðu.

Bergþóra Sól: "Þetta er fjör"

Sylvía Rán: "Hvað er fjör"

B.S. "Það er ströndin"

S.R. "Ha, hvað er fjör?"

B.S. "Fjör er ströndin og ströndin er fjör! Sjáðu þarna! og benti á mynd sem hún var að teikna þar hafði hún teiknað FJÖRU.



19.apríl 2011

Lára var að spjalla við Völu Krístínu og lýsa gestarúmi dóttur sinnar fyrir henni, þá sagði Vala:

"Já svona krullur, eitt niðri og eitt uppi!"



8.apríl 2011

Daníel vill ekki fara út, Villi og Laufey kennarar segja " við förum út að leika við ráðum"

Daníel: " Það ræður enginn yfir mér nema Guð og Jesú."



5.apríl 2011
Viktor Magni við pabba Jakobs Más þegar verið var að sækja hann:  " ég á bara einn dudd!"

11.mars 2011
Tómar: Ég er með blóðsnöru hérna uppi og bendir á nefið. (en er að meina blóðnasir)

23. febrúar 2011

Ísak og Gabriel eru að perla, þá spyr Bogga kennari Ísak? heitir þú ekki Gabríel Aron? þá svarar Gabríel kallaðu mig bara Sævar,

 þá segir Ísak já Sævar.



10.febrúar 2011

Vala, Anna Soffía og Þórhildur Lísa eru í Legokubbunum.

Þ.L. rekur kubb í puttann á Völu.

Þröstur kennari: Hvað segir maður þegar maður meiðir?

A.S. Viltu segja fyrirgefðu við hana Völu mína? (í ljúfum tón)

Vala: Já af því að við elskum hvor aðra svo mikið.

A.S. Já!   Nei!!!!



3.febrúar 2011

Helga Margrét  er stödd inn á skrifstofu hjá Brynju.

Brynja: Hvað heitir nú aftur bróðir þinn Helga Margrét?

H.M. Hann Sigurður Orri heitir hann. VEISTU? Hann Siggi fór á fótboltaæfingu og brotnaði í þúsund mola!!



7.febrúar 2011
Bogga spurði Tómas, viltu borða morgunmat?  Hann svaraði, nei er búin að borða. Hvað fékkstu? ég er búin að borða ristavél.

28.janúar 2011
Júlía Mist og Jóna Heiðrún voru að leika saman þegar J.M kallaði á J.H. hátt og skýrt: "JÓLAN koddu".

20.des 2011
Viktor Magni var að byggja úr einningakubbum ásamt fleirrum þegar byggingin hrundi og þá heyrðist "þarna munaði Jói"

3.janúar 2011

Aron og Jakob að syngja

Sælir, Nilli og ég var að bang-a chicks



22.mars 2011
Heiða J. að greiða Alexöndru Sif
A.S.: Heiða ég er fljú hár
H.J.: ha, hvað segirðu Alexandra?
A.S.: Ég er fljú hár og tekur í hárið á sér
H.J.: Ertu hársár?
A.S.: Já

21.mars 2011
Dóra: Þú verður að fara í ullarsokka Ragnar Atli
R.A.: Nei Dóra mér verður ekki kalt á tánum því ég á svo góða húfu!

21.mars 2011

Við matarborðið

Silja Kolbrún: Ég veit úr hverju tómatsósa er búin til
Ragna Stína: Nú, úr hverju?
S.K.: úr tómötum
R.S.: en piparsósa, úr hverju er hún?
S.K.: úr piparkökum
R.S.: Já er það? En þá brúnsósa?
S.K.: úr súkkulaði



18.mars 2011
Brynja Lind: Mamma mín er hætt að reykja. Hún segir bara ojj við reykinn. Hún fær sér bara tyggjó sem lagar hjartað.

15.mars 2011
Aron Örn: Ég get ekki smurjið þetta er svo stíft

23.febrúar 2011
Ólöf Hulda: Ragnheiður Steina er ekki farin
Ragna Stína: Er það ekki?
Ó.H.: Nei, ég held hún ætli að vera alveg þangað til.

16.febrúar 2011
Jóhann Gauti á skiptiborðinu.
J.G.: Stendur Jakob Máni
Ragna Stína: Nei, það stendur Zuzanna
J.G.: Sósa?
R.S.: Nei Zu-za-nna (með áherslu)
J.G.: Sú-per-man (með áherslu)

7.febrúar 2011
Alexandra Nótt: Ég var að fá slæmar fréttir.
Elín Óla: Nú hvaða fréttir voru það?
A.N.: Sko þegar sólin skín svona margt þá er komin vetur til vors og þá er sólin svo heit að maður þarf vatnsbyssu til að sprauta á sig. Það eru slæmar fréttir.

7.febrúar 2011
Alexandra Nótt: Veistu hvar Sævar var að gista? hann var að gista hjá ömmu ömmu. Það er líka stundum kallað tengdamamma. Já hún er tengdamamma mín en líka amma mín.

3.febrúar 2011
Sylvía Rán: Mér er illt í heilanum
Pabbi hennar: Nú, nú afhverju?
S.R.: því að krakkarnir eru með svo mikinn hávaða

3.febrúar 2011
Ómar Magni: Það stendur Ómar Magni Egilsson Steinarsson
Elín Óla: Steinarsson!!! afhverju?
Ó.M.: (mjög móðgaður) af því ég er alltaf að kasta steinum í vondu karlana, vissuru það aldrei??

28.janúar 2011

Gabríel Tristan og Ómar Magni eru í hádegismat, Ómar vill ekki grænmeti í pítuna sína en Gabríel vildi.

Elín Óla: Já G. ætlar að vera stór og sterkur
Ómar Magni: Ég er sko líka sterkur finndu bara byssurnar (spennir vöðvana og biður G. að finna)



4.janúar 2011
Dröfn nýr starfsmaður situr við morgunverðarborðið með Bjarka Frey. Bjarki horfir á hana og segir svo Dröbbi ef þú ert orðin kennari hér hver er þá mamma hans Gumma?

26.janúar 2011

Vilhjálmur Logi að ganga frá kubbunum

V.L.: ohhhh ég er svo þreyttur að labba fram og til baka, það er svo svitandi



25.janúar 2011

Anna: Dísa þú færð sko ekki að koma í afmælið mitt.

(Anna og Dísa eru tvíbura systur ;))



21.janúar 2011
Egill Björgvin: Heiða veistu hvaðer undir sjónum?
Heiða J.: Nei hvað?
E.B.: hákarlar og líka hvalar og fiskar
H.J.: Já er það?
E.B.: Já og hákarlar borða fiska

7.janúar 2011

Ragna Stína: Bjarki Freyr, ég er búin að leita að þér út um allt!!!

B.F.: Hvar var ég??????



6.janúar 2011

Margrét Júlía var að knúsa Nóel Snæ og hélt frekar fast um hálsinn

Ragna Stína: Óóó Margrét Júlía ekki halda svona fast, þá getur hann ekki andað

Margrét Júlía horfir á R.S. og svo á Nóel og hugsar sig um í smá stund. Byrjar svo að blása fullum krafti á Nóel Snæ



8.mars 2011

Petrea Mist spyr Hildi hvort það verði Pennahópur (foreldrar í heimsókn þennan dag). Hildur svarar "ja nei það verður eiginlega bara opið fyrir gesti og gangandi.
P.M.: En ég kom keyrandi!!!



22.febrúar 2011

Ragna Stína: Aron Örn ertu orðinn stóri bróðir?
Aron Örn: Já, það er kominn annar Aron. Hann heitir Aron 2.



21.febrúar 2011
Dröfn: Já Gummi og Gabríel eru frændur
Vilhjálmur Logi: vaaá Gummi er alltaf að skipta um frændur.

18.febrúar 2011
Þórhildur Lísa ætlar að pakka inn fyrir mömmu sína. Hún fær bandspotta.
Þ.L.: Ég get ekki bandað

14.febrúar 2011
Helga Margrét var að lita með fjólubláum lit og sagðist vera að búa til freming (pening)

5.nóvember 2010
Þórunn Fríða: Ég á svona skæri
Bjarki Fannar: Mín geta sko klippt kassa
Þ.F.: Mín eru sko miklu beittari þau geta klippt spýtu og járn
B.F.: Mín geta það líka, mín geta líka klippt veggi
Þ.F.: Mín eru sko beittustu í heimi
B.F.: Neits mín eru það, þau klippa menn og svona dót  (bendir á dótið hennar Þórunnar)
Þ.F.: vaaaá þetta er sko járn

25.október 2010
Sigurður: Ég er með barkabólgu í eyranu á mér

25.október 2010
Helga Margrét: Ég ætla að skæra (klippa)

25. október 2010
Sigurður var að leira í Pakkhúsi. Hann setti bláan leirklump framan á brjóstið á sér og sagði svo: " Ég er með mikla hálsbólgu"

6.janúar 2011
Hin árlega þrettánda bomba sprengd. Það gekk frekar brösulega að kveikja í fyrirbærinu en að lokum hafðist þetta.
Ragna Stína: Veeeeiiiiiii, glæsilegt
Aron Örn: ÞETTA gátu þær!!!!!

20.desember 2010
Aron Örn: Þegar afi minn var lítill þá gleymdi hann að fara í úlpu og þegar hann pissaði frosnaði hann

15.desember 2010

Kristín verður þér einhversstaðar illt þegar þú hóstar?

Kristín: Nei, bara í hjartanu



13.desember 2010
 Elín Óla: Bjarki Freyr átt þú ekki systir? Hvað heitir hún?
B.F.: Nei, ég á bara ungling, hún er sko unglingur

13.desember 2010
Anna, varstu lasin?
Anna: Nei ég var veik

13.desember 2010
Alexandra Nótt: Ragna veistu hvað bróðir minn brosir mikið fyrir mig? (sýnir RISA bros) og veistu hvað? Hann glansar alveg

Desember 2010

Í Pennahóp

Hildur: Ísak er í fríi í dag, er hjá ömmu sinni úti í Garði
Petrea Mist: Kannski er hann að raka saman laufin!



19.nóvember 2010

Petrea Mist: Viltu halda á mér?
Þröstur: Nei ekki núna
P.M.: Ekki segja nei!
Þ.: Segð'ekki nei segðu kannski, kannski, kannski
P.M.: (Syngur með) segðu ekki nei segðu já, já, já, já, já, já



11.janúar 2011

Ómar Magni spurði Boggu M. hvort hún væri með barn í maganum. Bogga svarar nei, er mamma þín með barn í maganum?
Ó.M.: Nei, hún var með mig. Fyrst smíðaði pabbi mig og svo mömmu utan um mig.



11.janúar 2011

Helga Margrét kemur grátandi til Rögnu Stínu.
R.S.: Hvað er að?
H.M.:(nuddar augað) Ég er með augu
R.S.: Ertu með augu????
H.M.: Já

Hún var með sand í augunum



29.nóvember 1010
Birnir Snær sat inni á skrifstofu Brynju eins og börnin gera oft, þegar hann var beðinn að koma að pissa og þvo hendur fyrir hádegismat. Þá sagðist hann ekki geta það af því hann væri að leika við Brynju.

1.desember 2010
Ólöf Hulda: Ég kann að telja á danmörsku upp í 12. Taldi svo á ensku

2.desember 2010
Tómas T.: Lára, einu sinni var ég að gubba og þá horfði ég á pylsubælið.

30.nóvember 2010
Gabríel Aron: Ég kann ekki að tala
Andrés K.: Nei, af því að þú ert ekki með neina tungu, af því þetta kallast tungumál.

24.nóvember 2010

 Á útisvæði:

Lára var að spjalla við Pétur Breka og Ómar Magna þegar talið barst að Grýlu og hvar hún á heima.
P.B.: hún á heima í skýjunum
Ó.M.: Nauts maður í Rússlandi.
Lára: HA???
P.B.: Já, það er stórhættulegt þar, það er fullt af Rússlatunnum.



15.nóvember 2010
Ísak Helgi: Tómas, Tómas, sæti, sæti
Tómas: Þú ert bara sæti sjálfur.
(Allt sagt í blíðum og góðum tóni)

10.nóvember 2010

Við matarborðið í drekkutímanum var kennarinn að biðja annan að sækja Vilhjálm Loga.
Viktor Magni: Vilhjálmur, hann er með hjálminn.



2010
Nokkrir strákar voru inni í pakkhúsi að teikna og búa til allskonar. Þá segir Gabríel Aron: Einu sinni var pabbi minn lögga. Þá segir Tómas T.: Einu sinni var pabbi minn að mjólka svín.

2010

Heiða var að tala við Gabríel, svo verður hann svo alvarlegur.

Heiða: þú ert svo grafalvarlegur
Gabríel: ég er ekki grafa.



2010

Umræður sem spruttu upp af þvía að Guðjón Steinn sagðist hafa búið í Danmörku. Þegar Lára var lítil bjó hún í Gindavík, en þá fórum við að velta fyrir okkur havr Guðjón Steinn var áður en hann fæddist.

Guðjón Steinn, Tómas og Brynjar Már töluðu um að þeir hefðu verið englar og misst vængina og lent í maganum á mömmu sinni.



2010
Brynjar Már: ég var beinagrind. Guð er með fullt af beinum þarna uppi og skinnum og límir beinin saman og skinnið á og setur í magann á mömmunum. Svo koma börnin út á hvolfi, en ef barnið kemst ekki út þá þarf að skera magann.

29.júlí 2010

Tómas T. á leið heim
Halldóra: Jæja Tómas, hvað ætlar þú að gera í fríinu?
Tómas T.: Ég ætla bara að skrifa bók.



3.mars 2010
Bergþóra Sól um leið og hún gengur inn í heimastofu: Heyrðirðu þetta?
Kennari: Hvað?
B.S.: Þeggar var svona RÖGGL! (meinti hljóðið í högglunum sem dundu á gluggunum).

15.janúar 2010

María Mist hnerraði og kennarinn sagði: Guð hjálpi þér.

María Mist: nei mamma mældi mig í morgun.



13.janúar 2011
Alexander fékk sér marga gúrkubita í hádeginu, þá sagði Róbert: þá er hann hollur.

12.janúar 2010

Gabríel Aron: Er þetta nokkuð Grimmur??
(grimmur = krummi)



12.febrúar 2010
Vilhjálmur Logi: Harry Potter to you, ég kann sko alveg að syngja þetta á ensku!
Kennari: er þetta afmælissöngurinn?
V.L.: jább

2010

Vilhjálmur Logi var að hugga Alex sem var að gráta.

Sigurborg: þú ert með eindæmum hlýr og góður strákur

V.L.: já, ég er svo heitur (og strýkur á sér hendina)



29.apríl 2010
Jói var með börnin í göngutúr og var Tómas T. þar á meðal. Hann var í belju stígvélum. Eftir nokkurn tíma fór Tómas að ganga skringilega og taka stór skref, svo sagði hann: Ég er alveg brjálaður í þessum beljum!

27.apríl 2010
Helga Margrét lá lasin í sófanum í Framnesi og Halldóra segir Láru að hún sé með hita. Gummi kemur þá og segir: hvað? leggur höndina á ennið á Helgu tekur andköf og segir: Já!!!! hún er með heitan hita.

23.mars 2010

Tómas T. settist niður til að fá sér að drekka. Barði svo í borðið og sagði: Ég ætla sko að segja þér það að ég vil ekki sitja við hliðina á prinsessu. (Ásdís Bára sat við borðið í prinsessukjól).



17.janúar 2011
Anna Soffía: Hann er jólalúði og ég er jólasveinn og Vala er jólakötturinn.
Ísak Helgi (horfir hneykslaður á Önnu Soffíu): Ég er LEPPALÚÐI

14.desember 2010

2006 árgangurinn fór í heimsókn i kirkjuna

Tómas: Hey! Ragna Stína, er sunnudagur?

Ragna Stína: Nei, það er þriðjudagur.

Tómas: Hvað erum við þá að gera í kirkjunni?



15.desember 2010

Nokkur börn vour í Kaffi Duus í jólakaffi.

Ylfa Vár: Hey Ragna Stína sérðu selina?

Ragna Stína: Þetta eru ekki selir þetta eru höfrungar

Ylfa Vár: Eru þetta hörmungar?



10.desember 2010

Heiðrún Rós: Tómas hvers vegna setjum við bensín á bílinn?

Tómas: Til þess að hann verði ekki þyrstur á leiðinni.



Nóvember 2010
Kristín Björg: Epli og perur vaxa á trjánum og þegar þau verða froskar þá detta þau niður

Ágúst 2010

Ómar Magni var að segja frá því að Þröstur hefði ýtt sér upp á þakið á húsinu en segir alltaf prestur í staðinn fyrir Þröstur.

Sigurborg: já Þröstur
Stuttu seinna
Ó.M.: Prestur er svo góður
Si.: Já Þröstur
Ó.M. hugsar sig um smá stund: Þröstur...... skírir hann ekki börn?



19.ágúst 2010
Sigurður: Í dag ætlar mamma að gefa mér ís með dýfu.
Dóra: ummm Tómas ætlar þú líka að fá ís?
Tómas T.: Nei, bara Cheerios

Ágúst 2010

Ísak Helgi kom aftur í leikskólann eftir langt sumarfrí þegar Tómas T. tekur eftir honum.

T.T.: Hey, varst þú ekki að reyna að hætta?



20.ágúst 2010
Davíð Már: Við erum að kasta í flugur, en það má ekki kasta í geitunga. Þeir sjúgir úr manni blóðið og stingir mann. Geitungar eru hættulegir.

18.ágúst 2010

Fótboltaleikur í gangi á Sólvöllum. Clifford, Róbert W., Guðjón Steinn, Andrés Kr. og Gabríel Aron voru í fótbolta. Guðjón Steinn var með 2 skólflur rauða og gula. Andrés var með eina rauða og Gabríel með eina gula.

Ragna Stína: Af hverju eru þessir fótboltamenn með skóflur???
Gabríel Aron: Það er af því að hann (Guðjón Steinn) er dómari og við (Gabríel og Andrés) erum línuverðir.

Svo hélt leikurinn áfram með tilheyrandi upplyftingum á skóflum.



17.ágúst 2010

Rán Ísold: Bjarki, þú átt að fara út!
Bjarki Freyr: Já en flugan er úti (sá geitung)
Erla: Farðu þá út að veiða hana
Bjarki Freyr: en... en pabbi á bara veiðistöng ekki ég.



2.júní 2010

Guðjón Steinn og Guðný Ösp á wc.

G.St.: Ég elska þig
G.Ö.: Ég elska þig
G.St.: Ég elska þig meira
G.Ö.: Ég elska þig líka
G.St.: Þú ert ein af okkur, þú ert ein af fjölskyldunni. Ég ætla aldrei að leyfa neinum að gefa þér einelti. Veistu hvað einelti er?
G.Ö.: Nei
G.St.: Það er þegar.... einhver er að elta þig eina
G.Ö.: Ragna Stína veistu hvað? Við ætlum að giftast
G.St.: Já, við erum búin að æfa okkur. Við kysstumst og allt.



1.júní 2010

Nokkrir guttar úti að slá.
Aron Örn: Það eru kallar í leikskólanum
Heiðrún: Kallar???
Ragna Stína: Já, nokkrir 18ára guttar

Aðeins seinna fer Brynjar Már út í glugga

B.M.: Hey, þessi 18ára gutti vinkaði mér. Hann var með andlit alveg eins og Björgvin Frans



31.maí 2010
Guðjón Steinn: Dóra, veistu hvað við Guðný ætlum að gera á eftir..... Hittast í hjónabandi.... Við ætlum nefnilega að gifta okkur!

27.maí 2010
Brynjar Már kemur með spilamöppu í leikskólann.
Guðjón Steinn: Hey, hvaða mappa er þetta?
B.M.: Þetta er spilamappa
Ragna Stína: En hvernig spil eru þetta?
B.M.: Þetta eru góð spil og ömurleg spil.

27.maí 2010

Guðjón Steinn: Við erum að byggja hurð
Ragna Stína: Já það er flott
G.S.: En Guðný við verðum að byggja hús!
Guðný Ösp: Nei, þetta er allt í lagi við gistum bara úti



26.maí 2010
Davíð Már: Hey, Ragna Stína ég vil eiga svona margar systur (sýnir alla fingurna)
R.S.: viltu eiga 10 systur?
D.M.: Já, þá er ég prins

maí 2010
Alexandra Nótt: Veistu hvað? Það er frí í skólanum hennar mömmu svo er helgarfrí. Það heitir helgarfrí af því að pabbi minn heitir Helgi.

3.maí 2010

Tinna í Vatnaskógi að segja börnunum hvað á að gera.
T.: Svo takið þið töskurnar í rútunni og þegar við komum inn förum við úr fötunum (átti þarna við útifötin) og setjum þau í töskuna.
María Rós: En ég er í (bendir á fötin sín).
T.: Já svo setur þú fötin bara í töskuna.
M.R.: Á ég bara að vera allsber?????



5.maí 2010
Elísabet Lena: Ég fór í froskapróf (þroskapróf).

31.mars 2010

Andri Þór að segja frá í samverustund.
A.Þ.: Vitiði hvað gerðist heima hjá mér? Það kom eldgos heima hjá mér og ég lokaði fast hurðinni á það og mamma mín hjálpaði mér.

Því næst gengur hann að Clifford og spyr: Hvað gerðist hjá þér?

Clifford: uuuuuu, veistu hvað? þú ert að ljúga. Eldgosið er langt í burtu.

Andri gengur þá í snatri að næsta barni og spyr: Hvað gerðist hjá þér?



23.mars 2010
Hekla Sif kemur til Rögnu Stínu
H.S.: Af því að ég var að meiða mig þá þarf ég að fá íííískalt vatn.
R.S.: Já
Hildur Rún: Af því mér er íííískalt þá er még með plástur (sýndi svo plástur á olnboga).

23.mars 2010

Ragna Stína og Silja Kolbrún eru að spila (bara tvær) og Tómas Ingi er að horfa á.

T.I.: Hey Ragna Stína ég held að þú eða Silja vinnur



15.mars 2010
Daníel Örn labbar inn í Vík (eldhúsið). Hann gengur einn hring um eldhúsið og svo einn hring um búrið augljóslega að leita að einhverju. Þá gengur hann til Helenu og segir: uuuuu hvar er..... Hvaer er vinur þinn (Bogga var ekki þennan dag).

17.mars 2010

Hekla Sif að lesa Orðabusl fyrir Ragnar Atla.

H.S.: Það er partý en partý verður partý. Það er partý hjá honum. Sjáðu Ragnar



15.mars 2010
Clifford Dean kom til Rögnu Stínu
C.: Ég má ekki fara út, ég er með svo ljótann hósta.
R.S.: Æ, hvað það var nú leiðinlegt.
Silja Kolbrún: Ég má ekki heldur fara út. Ég er með svo ljótan hiksta. Ég var með hiksta í bílnum á leiðinni.

7.mars 2010

Guðjón Steinn og Guðný Ösp koma til að fá sér að borða.
G.St.: Gjörðu svo vel frú
María Rós: Hún er ekki frú, maður verður frú þegar maður giftir sig.
G.Ö.: Við ætlum að giftast. Er það ekki Guðjón
G.St.: Ekki alveg strax, ég er ekki alveg viss um að ég ætli að giftast þér.



26.febrúar
Ásdís Alda slökti ljósin á wc, leit svo á Hildi og Heklu og sagðir með DRAUGARÖDDINNI sinni: drrrrrraumur, drrrraumur

7.janúar 2009
Gísli og Alex mæta í leikskólann og fara beint að fiskabúrinu. Gísli byrjar að hrópa á kennara.
Gísli: Sjáðu fiskinn (bendir á fisk sem var klárlega dauður)
Ragna Stína: (reynir að fegra dæmið) Ohhh er hann að synda?
Gísli: Neih!!!! hann er dáinn

22.desember 2009
Clifford var að koma frá Ameríku, Lára stoppar hann og segir: Ég ætla að sjá hvort þú hafir eitthvað breyst í Ameríku.
Clifford horfir sposkur á Láru og segir: Ég braut ekkert í Ameríku.

Desember 2009

Guðný Ösp: Ég ætla að pissa öryggispiss



21.september 2009

Í drekkutímanum voru Elín og Oddur að rífast við Agnesi og Þórunni Maríu. Þær síðarnefndu voru að hlægja af Elínu og Elín var að reyna ásamt Oddi að fá þær til að hætta. Þá segir Þórunn María við Odd: mamma mín er sterkari en þú. Þá svarar Oddur, Brynja er sterkust og ræður og setur mömmu þína í skammarabókina.



16.september 2009

Þórunn María, Þórunn Fríða og Svala voru að spjalla saman um lítil börn og dýr.

Þ.F: Ég ætla bara að fá stelpu í magann minn.
Þ.M: já ég líka, ég ætla að fá tvær stelpur í magann minn, enga stráka.
S: Ég ætla bara að fá hesta í magann minn



10.september 2009
Kennari: Sæll Guðjón Steinn flugmaður. Ætlar þú ekki annars að verða flugmaður þegar þú ert orðinn stór (sagði það daginn áður)?
G.S: jú, ég ætla sko í 8 skóla.
K: nú, svona marga
G.S: já ég ætla að verða svo margt

9.desember 2009
Gabríel Aron og André voru að leika sér í frisbý inni á heimastofu
G.A.: svona á ekki að gera í rice crispies leik

25.nóvember 2009

Clifford Dean er í samverustund að skoða Lifandi Vísindi og þar var orustuþota á forsíðunni. Hann bendir á þotuna og segir: þetta er skítaflugvél.

Lára: af hverju?
C.D.: hún er með byssu og vængi



24.nóvember 2009
Andrés Kristinn: Ég er bara vinur hennar Ásdísar Báru á þriðjudögum

24.nóvember 2009
Andrés Kristinn: hann er ekki jólasveinn hann er leppalúður

14.nóvember 2009
Halldóra: hey María Rós á Ylfa heima rétt hjá þér?
M.R.: Nei, langt, langt frá sko bara við hliðina á mér

10.nóvember 2009
Guðjón Steinn: Hey veistu hvað þegar ég verð 40 ára þá ætla ég að æfa körfubolta.
Halldóra: Já okey flott, en hvað ætlar þú að æfa þegar þú verður 10 ára?
G.S.: æfa?hmmmmm ég ætla þá bara að vera í flugvélinni minni og slökkva elda, þú veist bara það sem maður gerir þegar maður er 10 ára stór.

21 október 2009
Gabríel Aron: Stans í löggunnar nafni

14 óktóber 2009

Í hádegin sátum við og spjölluðum saman og krakkarnir fóru að leika sér í orðhlutagreiningu. Eins og til dæmis hvaða orð kemur ef maður setur vat og kanna saman? vatnskanna. Þá segir Lára en ef maður tekur í sundur? Hvað gerist ef maður tekur í sundur rúlluskauta????

Nadís Heiðrún (hneyksluð): þá dettur maður og meiðir sig.



14. október 2009
Gabríel Aron heyrði talað um veikindi í morgunmat og segir við kennara.
G.A.: veistu, veistu ég er líka veikur
K.: Nú æji hvað er að?
G.A.: Ég er með hósta og líka pínu knef

Nóvember 2009
Erla prestur kom í heimsókn og var að segja okkur sögu og sýna okkur myndir í Kiddasal. Tómas T. var að velta sér um á gólfinu. Hafdís rétti hann við, benti á Erlu og sagði: sjáðu konuna hvað er hún að segja?
Tómas T.: hún er að segja SATT (mjög ákveðinn)

15.september 2009

Lesið í sófanum í Vinaminni

Ásdís Alda: Ragna Stína hvað er þetta?
R.S.: þetta er nashyrningur

Ásdís Alda snýr sér að Leonard og segir: þetta er tasiningu



31.ágúst 2009

Alexandra Nótt að versla í búð hjá Þórhildi Lísu

A.N.: Góðan daginn

- ekkert svar

A.N.:  Góðan daginn (aðeins hærra)

- ekkert svar

A.N.: GÓÐAN DAGINN (mjög hátt)

- ekkert svar

A.N.:  ohhhhh, ég nenni þessu ekki (og labbar í burtu)



31.ágúst 2009
Klara Lind: Hey Gréta, Malena er með feitan fót alveg eins og ég.... nema ég er með mjóan

9.júlí 2009

Ásdís Alda og Elva (í mömmó) eru í göngutúr með kerru. Allt í einu stoppar Elva og andvarpar:" ohhh getum við farið í partýið.



6.júlí 2009

Jakob Máni og Davíð voru að prófa eitthvað sem Hjörtur var með.
H: Hættiðið báðir tveir. - farið upp í rúm báðir tveir



6.júlí 2009

Tómas T. og Bjarki Freyr að hoppa í Litla Vinaminni.

T.T.: Er þetta Kiddasalur?
Ragna Stína: Nei
T.T.: Er Kiddasalur opinn
R.S.: Já
T.T.: Má ég vera hér



6.júlí 2009

Þröstur hélt um bringun á Bryjari Má

B.M.: Hættu þú ert að kafna mig
Þ.: En ég held ekki fast
B.M.: Nei en hjartslátturinn nær ekki að komast



11.júní 2009

Guðný Ösp og Guðjón Steinn í vettvangsferð

Kennari: eruð þið vinir?
G.Ö.: já og líka kærustupar
K.: Núú eruð þið búin að vera kærustupar lengi?
G.S.: Já í 25 ár
G.Ö.: já eða kannski lengur



4.júní 2009
Guðný Ösp: Jæja Guðjón minn, eigum við ekki að kíkja út í blessaða veðrið

25.maí 2009

Vilhjálmur Logi að klæða sig í heimasaumaða skikkju.

V.L.: ég er með stórt gat á henni svo ég gæti ekki kristist (svo hann kyrkist ekki)



22.maí 2009

Kitta: Brynjar Vilhjálmur segir að þú hafir meitt hann fyrst.
Brynjar: Huh, þú sérð bara eitthvað ósýnilegt.



29.apríl 2009

Helga Rut og Guðjón Steinn að ræða um afmælið hennar Helgu

G.S.: Já svo kemur mamma mín með mér í afmælið, hún ætlar að skutla mér og svona.
H.R.: Já, nei, nei, nei, ég bauð bara krökkum, hún getur eiginlega ekki komið inn.



19.mars 2009

María Mist kemur út með brauðsneið nr. 2. Hún sest á bekkinn á móti kennara sem er líka að borða brauð.

M.M.: ég fékk mér bara skinku aftur
kennari: já já, finnst þér skinka svolítið góð?
M.M.: Já þetta er alveg eins og laukur...

smá stund líður

Kennari: og finnst þér þá laukur góður?
M.M.: já hann er grænmeti.



27.febrúar 2009
Róbert William þegar hann var núkominn inn af útisvæði og hélt höndunum uppi... Ég er svo kalt að ég er heitt á höndunum.

10.febrúar 2009
María Rós: ég ætla ekki að mótmæla Davíði.
Kennari: afhverju?
María Rós: þá kemur löggan og segir GAS, GAS, GAS við mig

8.janúar 2009
Guðjón Steinn: Við viljum ekki fara út því við erum lofthrædd við flugeldana.

20.maí 2009
Rúnar Ingi: Lára! Tómas er kominn.
Lára: Æði, vá Tómas ertu laus við gipsið?
Rúnar Ingi: Já, en hann er samt með höndina á sér.

15.janúar 2009

Víkingur Snorri: ég er með hóstabólgu



22.desember 2008

Við matarborð í hádeginu

Tinna: Ég er ógeðslega sniðug... ég get hugsað um ALLT



2008

María Rós: Ég er glötuð (með fýlusvip)
Gréta: hvað er að elskan mín?
M.R.: ég á ENGA systir

stuttu síðar

Guðjón Steinn: Ef ég ætti óskastein myndi ég óska mér lítinn dreng og svo líka.... hugsar lengi og vel...og ...og stóran dreng



eftir sögustund
Verið var að lesa Bréf frá Felix í hvíld:
Bjarni Hrafn: Lára getur þú lesið íslensku aftur á bak?
L: jájá
B.H.: sko í einu útlandi er hún bara töluð aftur á bak! Bískápur er ísskápur. En það er ekki pólska samt.

28.sept 2008

Tinna við Sigga: svona litli hundur farðu í vinnuna.

stuttu síðar var hundurinn hundleiður á vinnunni og fór bara í bíló



2008

Petrea Mist var eitthvað ósátt þegar hennar tími í kaðlinum var búinn og hún þurfti að leyfa næsta að komast að. Hún fór að gráta og sagði við Grétu að þær væru ekki lengur vinkonur.

G.: Það verður bara að vera þannig, maður verður að skiptast á.

Petrea Mist snýr sér við og öskrar á Grétu: " Ég er svo leiðinleg" (átti við að Gréta væri svo leiðinleg)



2008

Eftir miklar rökræður á útisvæði

Petrea Mist: ÉG VIL FARA INN
Þröstur: Maður fær ekki allt sem maður vill!
P.M.: en ég vill það sem ég vill



Desember 2008

Guðjón Steinn var einn úti að róla með lokuð augun.

Þröstur: Ertu sofandi Guðjón Steinn?
G.S.: Neeeeiii, nei, ég er bara að hafa fjör og kósý og taka því rólega og slaka á



Desember 2008

Samtal Bjarka Fannars og Sveinbjörns

B.F.: Það er svo kalt hérna!
S.: Það er allt í lagi, ÉG ER SVO HEITUR



10.desember 2008
Alexander Aron heyrði að einhverjir væru að fara í kaffíhús.
A.A.: ég vil líka fara í kartöfluhús.

3.desember 2008
Miki ýtti Rhys Ragnari sem grét hástöfum.
Kennari: Segðu við Miki að hætta.
R.R.: I couldn't because I was crying

27.nóvember 2008
Guðný Ösp við kennara: þegar ég verð stór þá ætla ég að vinna hér með þér

22. október 2008
Kennari: Guðjón Steinn ætlar þú að klára allan snjóinn úti? (hann var búinn að narta lengi í snjóinn)
G.S.: Nei, ég er bara að athuga'nn, hann er kaldur á svipinn!

15.október 2008

Við matarborðið í drekkutíma, afgangspítubrauð í boði með tómatsósu og osti.

Vilhjálmur Logi: Það blæður úr þessu.



7.desember 2009
Leikskólahópur að koma úr kaffihúsaferð. Silja Kolbrún labbar aðeins fyrir aftan Rögnu Stínu.
S.K.: Hey rassinn þinn er ferkantaður.

10.desember 2009

Tómas T. prumpar

T.T.: ég var bara að prumpa
Heiðrún: jaaaá
T.T.: (hvíslar) ekki segja



Nóvember 2009

Tómas T. var einn eftir kl:16:00
T.T. Jói viltu hringja í mömmu?
Jói: Já, hvað á ég að segja við hana?
T.T.: Sækja Tómas  NÚNA
Jói: en ég er ekki með síma.

Tómas fer til Brynju og fékk símann hennar lánaðan og rétti Jóa hann. Þegar Jói setur símann við eyrað og í því kemur mamma Tómasar í dyrnar

T.T.: Vá!! Jói, þetta virkaði



24.nóvember 2009

Lifur í matinn

Silja Kolbrún: Hvað er í matinn?
Ragna Stína: Lifur

Silja fær sér bita

S.K.: Er þetta strokleður?
R.S.: Nei! þetta er LIFUR
S.K.: Lifur er kjöt og strokleður blandað saman.



20.nóvember 2009
Gabríle Aron og Gummi P. voru að ganga á ganginum.
G.A.: Hey þetta er systir mín (bendir á Margréti Júlíu frænku sína).
G.P.: Er þetta systir hans?
Ragna Stína: Jaaa, þetta er frænka hans.
G.P.: Hva..., hvernig... stækkar hún bara eftir mörg ár?
G.A.: Já
G.P.: þá verður hún stærri en við.....eða.... þá verðum við í Myllubakka.....eða í fyrsta.

6.nóvember 2009

Ómar Magni kom með kall (Action Man) í leikskólann.

Ragna Stína: Hvaða kall er þetta? Er þetta Ken?
Ó.M.: NEIHH
R.S.: er þetta Action Man?
Ó.M.: Neihh þetta er afi
R.S.: Er þetta afi?
Ó.M.: Já, afi minn



10.júlí 2009
Gabríel Aron og Magnús Máni ganga um grasið úti með kerrur.
Ragna Stína: Hva, eruð þið bara í göngutúr?
G.A.: Nei, við erum ekki í göngutúr
R.S.: Nú eruð þið ekki að ganga með kerrurnar?
G.A.: Nei! við erum að slátta grasið.

29.júlí 2009
Hjörtur Guðjón datt.
H.G.: Laufey, ég datt
L.: Dastu á rassinn?
H.G.: já
L.: Meiddirðu þig?
H.G.: Nei, hann er vondur
L.: Hver er vondur?
H.G.: Hann rass

29.júní 2009
Ómar Magni mætti með slökkviliðsbíl.
Magnús Máni: Ertu með glökkibíla?, - ertu með glökkibíl?, - þú vinur minn.

12.maí 2009

Ásdís Bára að telja upp hvaða dýr eru i bókinni sem hún er að skoða:" gírafíll og blýfluga".



1.júlí 2008
Þórunn Maria að lita. Þegar hún var búin öðru megin á blaðinu spyr hún hvort hún megi gera hinu megin og snýr blaðinu við.
Þ.M.:"Hey það sést út!!!" (það sást í gegnum blaðið)

30.júní 2008
Andri Snær: Hmmm, ég finn ekki neitt hérna
Ragna Stína: Nú, hverju ertu að leita að?
A.S.: Ég veit það ekki

30.júní 2008
Ragna Stína: Sólveig Amelía átt þú þessa sokka?
S.A.: Já
R.S.: Mætti ég biðja þig að setja þá í nýja hólfið þitt?
S.A.: Já! (gengur í nokkra hringi) Hvar er hólfið mitt? (Hún fann ekki fataklefann).

Jóhann Dagur
Jóhann Dagur: á ég að sýna þér hvernig geimflaug fer af stað? Svo skrúfar hann rólega frá öðrum krananum í sullukerinu.

6.júní 2008
Guðný Ösp er búin að vera slæm í maganum og er nýbúin að kúka og segir:" ég er ekki lengur með rennikúk"

2.júní 2008

Kennari kveikir á reykelsi til að sjá viðbrögð barnanna í leik og samskiptum.

María Ashley og Sonja Baddý ræddu um reykelsis lyktina og önnur sagði að þetta væri eins og þegar maður grillar sykurpúða, það má ekki grilla þá of mikið þá springa þeir.



14.febrúar 2008
Við vorum í göngu þegar Vilhjálmur V. segir: Hey ég sá reykju þarna, og benti á sígarettustubb.

7.desember 2009
Lára bendir á Grýlu á Jólahúsi barnanna.
L: Hver er þetta?
Jakob Máni: Leppalúða

24.nóvember 2009

Silja Kolbrún: Ragna Stína hvenær kemur leikskólahópur?
Ragna Stína: Á fimmtudaginn.
S.K.: Ég á bleikan trefil
R.S.: Er það? hvenær ætlar þú að nota hann?
S.K.: Þegar snjórinn kemur.
R.S.: Og hvenær kemur snjórinn eiginlega?
S.K.: Á fimmtudaginn



17.september 2009

Leikskólahópur var í göngu, þegar þau koma auga á sígarettustubb á gangstéttinni.

Ragna Stína: Hvað er þetta?
börnin hugsa sig um og stara á gripinn

Silja Kolbrún: ...æ þetta er svona til að blása í.



26.október 2009

María Mist: Ég veit hvernig maður á að búa til sokka.
Lára: Nú, hvernig.
María Mist: Maður býr fyrst til sokkabuxur og svo klippir maður smá og þá eru komnir sokkar.



September 2009
Brynjar Már var eitthvað að pirra Alex og sagði svo :"Ég ætlaði bara að hressa hann við!!"

280508

Clifford: Hvað heitir þetta búr?

Kennari: Fiskabúr

Brynjar: Veistu hvað fiskarnir heitir?

Clifford: Nei

Brynjar: Þeir heitir Nemó



220409

Rúnar Ingi var að hjóla með engin hjálparadekk og datt.

Ragna Stína: Jihh, Rúnar ertu nokkuð slasaður?

Rúnar: Neihhh, veistu... á ég að sýna þér..

Rúnar rennir niður úlpunni sinni og í ljós koma aukafötin úr töskunni hans. Búinn að troða inn á sig svo hann meiði sig ekki ef hann dettur.



020409

Vorum að hlusta á Kardemommubæinn í útvarpinu.

Andrés: Kabebarinn

Ragna Stína: Já

Andrés: ég fór á ann

R.S.: Já

Andrés: ðæniganir dela Fosisusu fækkur.



okt 08

Clifford sá Tómas T. sem var nýbyrjaður í Vesturbergi og sagði: Hvað heitir hann?

Hulda Rósa: Hann heitir Tómas

Clifford: Já, alveg eins og Oddur



151208

Gabríel Aron tosar eitthvað í Ásdísi Báru.

Á.B.: Hættu þú meiðir mig.

G.A.: Á ég að fara með þig á spítala?

Á.B.: Nei!

G.A.: Hættu þá (og hélt áfram að toga hana með sér í Kiddasal)



091008

Hafdís var nýbyrjuð að vinna í Vesturbergi, þá kom Tómas Ingi í heimsókn í Gróf.

Hafdís: Hvað heitir þú?

Tómas Ingi: Tóma Ingi

Hafdís: Nú eru tveir Tómasar í Vesturbergi?

Tómas Ingi sagði þá mjög ákveðinn: Nei það eru ekki tveir Tómasar, hinn heitir Oddur, það er strákurinn minn (Tómas Ingi og Oddur eru tvíburar en Tómas Ingi vissi ekki að það er annar Tómas í Gróf).



110908

Allir voru í Kiddasal vegna blómaafhendingar (for.félga Vb. afhenti leikskólanum blóm). Ragna Stína var (aldrei þessu vant) með gleraugu.

Þórunn María horfir lengi á R.S. og segir svo: Hvað heitir þú?

R.S.: Ég heiti Ragna Stína

Þ.M.: Afhverju ertu með gleraugu?
(hún var ekki viss um að þetta væri sama daman).



100908

Ragna Stína gekk um skólan með drekagrímu.

Þórunn Fríða: Ég ætla að kaupa svona.

Ragna Stína: Veistu þú getur búið svona til. Ég bjó þessa til.

Þórunn Fríða: Nei, ég ætla að kaupa svona í dóta.. nei, í bangsabúðinni. Ég sá svona... Veistu! í gamla daga þá sá ég svona í bangsabúðinni.



280409
María Rós sat á litla klósettinu og horfði á Hildi kennara,:Það væri fyndið ef þú myndir sitja á litla klósettinu, rassinn færi út um allt.

28.janúar 2008
Strákarnir voru eitthvað að spá í fánunum á hólfunum og sögðu svo að Miki talaði pólsku. Þá sagði Ingó: Pabbi minn talar grafísku við menn

25.janúar 2008

Sigurður Orri að segja frá því sem hann sá í dýragarðinum

S.O.: ......... og önd og dýrvaffi (gírafi)



2008
Bogga spyr Helgu Rut hvort hún eigi þessa bleiku peysu? Helga Rut svarar:,, Nei, mín er svona blönduð og bendir á peysuna sína sem er marglituð;)

16.janúar 2008
Ægir Þór: Nú er Kiddi 5 ára í skýinu

8. desember 2008

Bjarni Hrafn og Miki voru að kasta snjóboltum í Vesturberg. Í því labbar Hildur kennari til þeirra og spyr hvað þeir séu að gera.
Bjarni Hrafn: Við erum að æfa okkur að kasta eggjum í forsetahúsið.



22.júní 2005
Ragna Stína: Hey Gísli, Eiríkur og Helgi viljið þið setjast fallega...
Árdís Inga: Gísli, Eiríkur og Helgi! Helgi! Hver er Helgi?

22.júní 2005

Ragnar Ingi: Ég fór í Slakka í dýragarð.
Ragna Stína: Vá, og hvaða dýr sástu?
R.I.: Ég sá páfagauka.
R.S.: Já vá, en sástu nokkuð ljón?
R.I.: Neeeeii
R.S.: Nei það er ekki til á Íslandi bara í útlöndum. Er nokkuð Slakki í útlöndum?
R.I.: Nei, ljónið er bara í húsdýragarðinum.



22.júní 2005
Antonía: Ég á nýjan bíl! Hann er bara orðinn svolítið gamall.

31.maí 2005
Ragnar Ingi: Ingó er með bakverk.
Margrét: Æ, er honum svona illt?
Ragnar Ingi: Já, hann þarf að fara til tannlæknis.

10.maí 2005
Kamilla Birta: Veistu hvernig ég og Anna Pálína erum frænkur?
Ragna Stína: Nei, hvernig?
Kamilla Birta: Við eigum sama frænda, hann heitir Knútur og ég fékk líka einu sinni að gista hjá Önnu Pálínu.

6.maí 2005
Ágústa: Ég er engill að ljúga (fljúga).

4.maí 2005
Kamilla Ósk: Hvað heitir nú aftur kínverska stelpan sem er indjáni og er ekki í Pétri Pan, heldur öðru?

4.maí 2005
Á bókasafninu
Auður Erla: Oj bara, baunamatarprumpið í þér Kamilla Birta.

27.apríl 2005
Gabríel: Ég var að spæja um forsetann, hann ætlar að saga Reykjavík af Íslandi. Þetta eru nú meiri vísindin.

25.apríl 2005
Ragnar Ingi: Það er rosa oft fiskur í matinn, ég vil fá hamborgara.

22.apríl 2005
Árdís Inga: Ég fór á kekkí kekkí (Kentucky)

19.apríl 2005
Kristberg og Dagbjartur í björgunarleik.
Kristberg: Hjááálp ég datt í sjóinn, ég datt í sjóinn, ég datt í sjóinn (beið eftir björgun).
Dagbjartur: Stattu þá bara upp!!

12. apríl 2005
Birgitta Rún: Hvað er klukkan?
Inga: Ekkert mikið.
Birgitta Rún: Er klukkan inni meira?

11.apríl 2005

Ragnar Ingi: Mig langar að fara heim.
Ragna Stína: Já þú ferð heim klukkan 4.
Ragnar Ingi: Aumingja mamma mín.



8.apríl 2005

Eva María var að leika með kall sem Kristberg átti og var ekki búin að biðja hann um leyfi. Kristberg kvartar eitthvað og Eva María gargar eitthvað á hann.
Ragna Stína: Eva María, Kristberg á kallinn og þú verður að spyrja hvort þú megir prófa.
Eva María lítur á Kristberg.
Kristberg: Máttu prófa??
Eva María: já
Kristberg: OK



6.apríl 2005
Birgitta Rós (3ára): Þegar ég var lítil 4 ára, þá sá ég mörg tröll úti í útlöndum.

6.apríl 2005
Árdís Inga: Ég tala ekki svolítið mikið!

31.mars 2005
Nokkrir voru að perla með Rögnu Stínu í eldhúsinu. Kamilla Ósk var þar á meðal og vildi bara perla með glimmer perlum. Ragna Stína hjálpar henni að finna síðustu glimmerperlurnar úr kassanum.
Kamilla Ósk: Oh, Ragna takk fyrir að leita lengur. Maður má sko aldrei gefast upp!!!

23.mars 2005
Margir krakkar sátu uppi á borði á útisvæðinu og Jóhann var skipstjórinn. Allt í einu segir hann: Æ, nú datt einn í sjóinn. Við verðum að senda syndara til að sækja hann.
Inga: Hvað segir þú syndarar?
Jóhann: Já skriðsyndara.

7.mars 2005
Árdís ætlaði að fá að prófa eitthvað hjá Bergsveini, nema hann öskrar eitthvað á hana.
Árdís: Vá, ég fékk næstum því hausverk!!!

4.mars 2005
Saga: Veistu hvað ég ætla að vera á öskudag?
Bogga: Nei.
Saga: Það byrjar á K........
                 kálfur, svona kindaungi með ekkert hár!

3.mars 2005
Ragnar Ingi: Fistóber Jui (Kristófer Hugi)

3.mars 2005
Ægir Þór: Buhkki Du (Scooby Doo)

1.mars 2005
Dóra: Rosalega finnst mér brokkolí gott.
Anna Pálína: Mömmu minni finnst líka broddgöltur góður.

2.mars 2005
Elvar: Dóra, þetta er sko ekki gott á hænurnar.
Dóra: Hvaða hænur?
Elvar: Nú hænurnar sem við erum að borða!!

16.október 2007
Eva María með sögustund í Rósaseli. Sagan var um svaka flotta kerlingu.
Eva María: ... og hún var með brjós lafandi niður á brjóst.

24.04.'06
Júlía Mjöll: Óó, hann Jónsi er svo mikið æði.

24.04.'06
Bergsteinn Freyr: Það er nasaringur í þessari bók.
Andri: Það heitir nasahringur.
Júlía Mjöll: Þetta er nashyrningur.
Bergsteinn Freyr: Ég sagði það, nasaringur!!!

19.maí 2008
Tinna við Sonju Steinu: þú ert frek við mig. En ekki mikið, bara smá. Ég er líka frek. En nú varst þú frek við mig.

Framtíðarsýn barnanna í pennahóp

Hvernig haldið þið að Ísland (Keflavík) verði þegar þið verðið stór?

Andri: Kannski væri húsið mitt farið í annað land.

Sonja Baddý: Kannski verður bara til flugbílar, það er byrjað að teikna þá.

Ingó: Kannski verður til bátabílar.

Kristófer: Ég held að Ísland verði breytt. Með öðruvísi húsum með hringlóttu þaki.

Ægir: Kannski verður leikskólinn annarsstaðar. Kannski verður bensínstöð hér.

Jóhann Dagur: Kannski verður bara allir englar og til flughjól.

María: Verður þetta kirkja fyrir gamla fólkið eða elliheimili.

Bergsteinn: Kannski verður allt breytt á Íslandi. Breytt nafn á Íslandi.

Ragnar: Kannski tölum við annað mál.

Ingó: Kannski verður til bátaflugvél.

Sonja Baddý: Öðruvísi símar.

Ragnar: Kannski verða fuglar í vatni og fiskar að fljúga.

Andri: kannski verða til flughús.

Ægir: Kannski koma geimverur í húsið okkar

Kristófer: flugkrókódílar.

Máni: Flughúsið fer fyrst upp og svo beint niður.
Ragnar: það er kannski blaðra á húsinu

Jóhann Dagur. Þyrlur sem geta lent á vatni og við verðum öll riddarar



16.maí 2008
Sjáðu þetta er alveg að verða tilbúið... sagði Mikael Smári og benti á nýja Vesturberg.

5.maí 2008
Klara og Guðný voru í leik í Framnesi. Allt í einu segja þær: Við erum pólverjar að vinna í flugvél. Má bjóða ykkur að drekka?

14.apríl 2008
Bogga: Brynjar hvar fékkst þú svona falleg augu?
Brynjar: Þau bara voru þarna!

11.apríl 2008
Siggi með kornflögur í poka: Bogga ég elska korn flakes.
María Rós glettin: sko ég elska hor (setur putta í nefið) og líka að bora í nefið, það elska ég líka.

31.mars 2008

Oddur Fannar og Tómas Ingi komu með litla rúsínupakka í leikskólann. Þegar þeir ætluðu að gæða sér á góssinu sagði kennarinn að þeir ættu að gefa smá með sér, annars að setja pakkana í hólfið. Tómas Ingi gaf hinum börnunum með sér en Oddur Fannar var ekki alveg tilbúinn.
Oddur Fannar: Ég ætla að borða fyrst.



26.mars 2008
Jóhann Dagur barði (laust) í fótinn á Mána með einingakubbi og Máni fór að gráta.
Jóhann Dagur: Æi, Bogga þetta var bara voða létt.

13.febrúar 2008
Nokkur börn að koma inn eftir vætusama útiveru.
Viktoría Ása: Ég er alveg kolblaut!
Kennari: Hvað segir þú, ertu kolblaut?
Viktoría Ása: Já, hvað þýðir það?
Kennari: Ég veit það ekki, þú sagðir það.
Viktoría Ása: Já, hehe! Það þýðir blautt.

11.febrúar 2008

Í spurningaleik.
Hildur: Hver þjónar á vetingastað?
Ægir svarar snöggt: Koppurinn.



8.febrúar 2008
Ægir Þór spurði Nensý hvort hún væri með lausa tá (brotna tá).

20.janúar 2008
Ingó: Ég er alveg kolsveittur (ný kominn úr íþróttum).

23.janúar 2008
Rúnar var að mæla glugga og sagði: Þetta er sko fimmtíuþúsund kall stórt.

21.janúar 2008

Ingó: Þetta er heimskulegasti dagur sem ég hef upplifað.
Bogga: Ha, nú afhverju?
Ingó hágrátandi: af því að ég má ekki perla.

(hann langaði ekki að fara út)



Eftir fráfall okkar elskulega Kidda

Eva María: Núna er Kiddi blindur engill að fljúga.

Miki: Bíllinn keyrði á Kidda og Kiddi skjótast upp í himinn.

Rúnar Ingi bendir á eina stjörnu og segir: þarna er Kiddi.

Eva María: sálin er farin til Guðs.

Halldóra Sif: Nú er Kiddi á himnum hjá kisunni minni, að passa hana.

Klara Lind, Tinna og Sonja Steina: Núna er Kiddi hjá Guði. Þegar það kemur nótt þá er hann í stjörnunum.

Tómas Ingi: Veistu, þegar ég var lítill einu sinni, þá var ég líka dáinn.



23.nóvember 2007

Ingó: Bogga má ég vera berfættur?
Bogga: Já en sokkana í hólfið OK!
Ingó fer í fataklefann og kemur ber að ofan til baka.
Bogga: Þú ert ekki berfættur.
Ingó: Jú ég er berfættur fyrir ofan klof.



26.nóvember 2007
Eva María: sjáðu þetta er fuglur
Ragnar Ingi: Hann er ekki fullur, þetta er FUGL!

7.nóvember 2007

Ingó að sveifla hendinni í hringi
Bogga: Passaðu þig að hendin detti ekki af!!
Ingó: Hún dettur ekkert ég er límaður við hana.



31.október 2007
Helga Rut að fá sér appelsínu og sá þetta hvíta á appelsínunni og sagði: Ég vil ekki beinið..

20. september 2006

Ingó var að vatnslita og blanda saman litum: Þetta er orðið fjólugrænt!

Ágúst: Og þetta er orðið fjólusvart! Og svo verður það fjóluhvíttsvart!



24. október 2006

Dóra: Ég hef engann tíma í þetta

Ingó: Dóra ég skal finna fyrir þig tíma

Ingó fer og sækir gamla klukku

Ingó: Hérna er tíminn, og réttir Dóru klukkuna



16.janúar 2008
Oddur Fannar: Hvað heitir þessi bókar?

12.september 2007
Gunnhildur var að sulla í vaskinum, þegar hún var að klæða sig þá strauk hún magann og axlir og handleggi og sagði svo
"Ég er sko kroppalína".

14.september 2007
Klara Lind: Lillý ég er búin að kúka!
Lillý: ojk, ég er að koma
Klara Lind: þetta er sko stór stór banani!

29.ágúst 2007

Vignir sat á klósettinu og sá stúlku berrassaða.
"hún er búin að týna typpinu"



21.nóvember 2007

Í lok dags voru nokkrir krakkar að leira og upp kom spurningin: Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?

Þórunn Fríða: Ég ætla bara að vera Þórunn Fríða: Ég ætla bara að vera Þórunn Fríða

Agnes Eir: Stór og sterk

Þórunn María: Keyra vagninn

Svala Rún: Kona (skvísa)



gamalt/nýtt

Sigga (mamma Elvars): Hvað gerðir þú í dag Elvar?
Elvar: Ég kveikti í dínamíti.



21.ágúst 2007
Kiddi búinn að perla og vill láta strauja fyrir sig.
Kiddi: Heiða Rut viltu stroka út fyrir mig?

30.september 2005-gamalt/nýtt
Saga: Hver á afmæli?
Dóra: Kiddi, hann er 2ára.
Saga: Nú ég hélt að börn byrjuðu 2 ára í leikskólanum.
Dóra: Já en Kiddi er búinn að vera svolítið í leikskólanum.

9.ágúst 2005-gamalt/nýtt
Nokkrir krakkar fóru í fjöruferð og fundu ýmislegt þar.
Antonía Mist: Ég fann kylfubolta (golfkúlu).

23.maí 2005-gamalt/nýtt
Jóhann: Ég heyrði bara ekkert í þér. Ég er kannski bara heyrnadauður.

10.maí 2005-gamalt/nýtt
Gabríel: þegar amma Sigga var lítil þá var hún eitthvað að vesenast að skjóta hvali.

1.apríl 2005-gamalt/nýtt
Ragnar Ingi sá fugla úti.
Ragnar Ingi: Sjáðu fuglarnir ætla að hlaupa og borða brauð.
Ragna Stína: Já, svo þegar sumarið kemur þá borða fuglarnir orma.
Ragnar Ingi: (grettir sig) Já svo kemur kisa og borðar fuglinn og svo kemur hundur að borða kisu.

1.apríl 2005-gamalt/nýtt
Auður Erla: Hey, þið eruð fjögur í fjölskyldu. (Saga lítur hneyksluð á hana) Já því Sóla er bara kisa.
Saga: Já, já.
Auður Erla: Hey þið eruð fjögur fólk í fjölskyldu og við erum fjögur fólk í fjölskyldu.
Saga: Já.

31.mars 2005-gamalt/nýtt
Sandra: Veistu hvað er hjá mér í kvöld? - BJÚGU. Og Solla amma kemur að borða hjá mér. Ekki Júlli afi því hann er dáinn ennþá.

30.mars2005-gamalt/nýtt
Þröstur: Ef maður fer í íþróttaskóla, þá lærir maður bara íþróttir.
Eyþór: Já, ekki að lesa og vera unglingur og svoleiðis.

22.mars 2005-gamalt/nýtt
María Ashley: ég þarf að fara úr kuldasokkunum (ullarsokkunum).

15.mars 2005-gamalt/nýtt
Dagbjartur Tryggvi var búinn að mála aðra höndina á sér græna. Þegar hann var spurður hvað hann væri að gera svaraði hann:"Ég ætla að vera Hulk!"

14.mars 2005-gamalt/nýtt
Árdís Inga: Það er búið að grafa af minn niðrí jörðina, svo flutti hann til himins! (það voru umræður um afa og ömmur sem eru dáin).

9.mars2005-gamalt/nýtt
Árdís Inga: Dóra veistu afhverju ég er í rúllupeysu? Af því að ég er með hósta!

28.febrúar2005-gamalt/nýtt

Árdís Inga: Dóra þú varst úlfurinn, ég var hrædd í hjartanu.



28.febrúar 2005-gamalt/nýtt
Jóna Hrefna: Auður Erla chillaðu.
Auður Erla: Ég er ekki með tilla!

28.febrúar2005-gamalt/nýtt
Antonía Mist: Ég má ekki fara út segir pabbi minn. Af því ég þoli ekki sól og ég nenni ekki í rok.

28.febrúar 2005-gamalt/nýtt
Dóra: Krakkar borðið þið brokkolí?
Antonía Mist: Mamma mín er með ofnæmi fyrir broddgöltum.

17.febrúar 2005-gamalt/nýtt
Kamilla Birta: Vá, hvað smjörið er liðugt (lint).

16.febrúar 2005- gamalt/nýtt
Kristófer Hugi: Ingó er með gat.
Ragna Stína: Já, hann fékk gat á hausinn.
Kristófer Hugi: Hann verður að fara til dýralæknis. Dýralæknirinn verður að sauma hann.

16.febrúar 2005 gamalt/nýtt

Í samverustund með yngstu börnunum. Búkollu sagan var í fullum gangi og nautið er að pissa á eldinn.
Kristófer Hugi: Það má ekki pissa á eld, það á að pissa í klósettið.



14.febrúar 2005 - gamalt/nýtt
Kamilla Birta: Ég var að rétta Sögu þetta.
Auður Erla: Hún heitir Saga! Þú átt að segja Sögu ekki sögu. Þú varst næstum því búin að segja sögu eins og að segja sögu.

September 2007
Helga Rut: Ég fór á tónleika í gær, það voru strákar að syngja voða mikið (fór á tónleika á ljósanótt).

2007
Clifford var að púsla konuna með barnið í maganum. Hann er spurður afhverju barnið sé í maganum á konunni.
Clifford: Það er kalt.

2007
Barbara: Rúnar, hættu að ýta! (Hann heldur áfram)
Barbara: Hættu! Skilur þú ekki?
Vilhjálmur: Hann talar ensku.

2007
Nökkvi var með sár á fæti.
Eva María: Hann Nökkvi er með blóðnasir (bendir á sárið á fætinum).

2007
Kristófer Hugi: Ég er handabjörn (pandabjörn).

2007
Ragnar Ingi rakst eitthvað utan í Bergstein
Heiða Rut: Ragnar passaðu þig!
Bergsteinn: Þetta er allt í lagi, hann hélt bara að ég væri motta.

13.apríl 2007

Rúnar og Vignir eru að púsla púsl með óléttri konu.
Erla: Hún er alveg eins og Margrét með lítið barn í maganum.
Vignir: Hún er búin að borða barnið.



30.janúar 2007
Emil: Ég er ógeðslega svangur, ég er bara búinn að borða 2 skeiðar af brauði.

30.janúar 2007
María Ashley: Mér er svo heitt, ég er eins og ofnur

30.janúar 2007
Erla: Ohh hvað þú ert með mjúkar kinnar Emil. Hvað borðarðu til að fá þær svona mjúkar?
Emil: Ég borða svo mikið af bollum.

8.janúar 2007

Ingólfur var að elda pasta fyrir Erlu.

Erla: áttu rauðvín?
Ingólfur: Nei, en ég á grænvín.

Erla drakk grænvín með bestu lyst með matnum í þetta skiptið



5.janúar 2007

Ægir: Hvað er í matinn?
Sigurborg opnar kassann og kíkir í bakkann og segir svo: habba sonna...
Ægir lítur þá á Maríu og segir: Það er habba sonna í matinn.



22.desember 2006
Brynja: Einar Bjarki, slakaðu á í eplunum - þú þarft enga orku þú ert svo orkumikill!
Einar Bjarki: Jú, ég er að safna í handahlaup.

19.desember 2006
Sævar Ingi: Ef það eru rauð jól þá er rauður snjór!

14.desember 2006
Eva María: Brynja, Brynja ég er María Mist! (Hún var að leika Maríu Mey i Helgileiknum).

15.desember 2006
Siggi að teikna flugvélina hans pabba.
Erla: Ætlarðu að verða flugmaður?
Siggi: Nei, ég ætla að vera Siggi.

24.október 2006

Kennarinn spyr Óla hvaða árstíð kemur á eftir haustinu:
Óli svarar: Smjör



20.október 2006
Alexander: Arna þú ýttir mér og mér brá svo að ég fékk HJARTAÁFALL.

6.október 2006

Máni og Ágúst í góðum leik.
Máni: Ég er saddur núna.
Ágúst: Já ég er líka kalt!
Máni: Ég er saddur ekki kalt.
Ágúst: haha það er kominn snjór...



5.október 2006

María: Birgitta mannstu þegar þú heltir niður "SB" mjólk?
Birgitta: Já, en hún heitir AB mjólk.



2.október 2006

Júlía: Er eitthver október í dag?
Inga: Já það er 2.október.
Júlía: Já, eitthver annar október!



29.september 2006

Ragnheiður að tala um veikindi barna. Þrjú börn farin heim í dag.

Nökkvi: Guð minn góður



16. nóvember 2006

Humarinn er nýkominn í fiskabúrið.
Árdís Inga: Er þumallinn kominn oní, eru báðir þumlarnir oní?



8. nóvember 2006

Ágústa Særós og Tinna sitja inni í Vinaminni og mála.
Ágústa: Ég vil blað eins og hún.
Tinna: Ég heiti ekki hún, ég heiti Tinna.



24. október 2006

Dóra: ég hef engann tíma í þetta.
Ingó: Dóra ég skal finna fyrir þig tíma.
Ingó fer og sækir gamla klukku
Ingó: Hérna er tíminn, og réttir Dóru klukkuna.



28. september 2006
Kiddi við matarborðið: Hættu að hjálpa mér eins og bjáni (Rúnar Ingi var eitthvað að reyna að vera góður við hann).

2006

Dóra var að leita að gleraugunum hennar Magdalenu.
Kristberg: Finnast þau hvergistaðar?



2006

Börnin voru að lita mynd af Birtu og Bárði (úr Stundinni Okkar).
Ágústa Særós: Einu sinni voru Birta og Bárður í gamla sjónvarpinu okkar. Nú eru mamma og pabbi búin að fá sér nýtt sjónvarp og þau koma aldrei.



18. október 2006

Ágústa Særós var í nýjum inniskóm.
Hvar fékstu svona fína skó?
Ágústa Særós: Í Svínabúðinni (Bónus).



9. október 2006
Heiða rétti Margréti bíl og sagði að það væri kominn slatti af börnum út. Eva María stóð hjá og spyr hvort það séu slettur á bílnum.

3. október 2006

Oddur var búinn að kúka í bleyjuna og Tommi sat í glugganum og endurtók aftur og aftur:" Oddur búinn að kúka, ógislegt mar (ógeðslegt maður).



25. september 2006
Árdís Inga: Það má ekki kjafta við stóra krakka Sonja Steina!!! (skiluru það)

September 2006
Eva María: Það má bara fara klukkumínútur út (smá tíma út).

20. sept. 2006

Ingó var að vatnslita og blanda saman litum: Þetta er orðið fjólugrænt!
Ágúst: Og þetta er orðið fjólusvart! Og svo verður það fjóluhvíttsvart!



Sept. 2006

Við morgunverðarborðið

Alexander: Ég er svo slappur í hendinni, af því ég vaknaði svo snemma, þess vegna get ég ekki smurt!



20. sept 2006
Nökkvi: Ragnheiður, litlu börnin eru næstum því að tala rússnesku.

16. sept 2006

Á vinafundi

Enar Bjarki: Oh, ég er svo illt í hjartanu af því ég fékk ekki verðlaun strax. (hann fékk verðlaunin síðastur)



17.sept 2006

Ragnar Ingi: Heyrðu þú ert hundurinn, komdu hundur.
Kristófer Hugi: Hei! minns er ekki orðinn hundur strax, bara a eftir (hann þurfti aðeins að klára að kubba).



Sept. 2006

Tinna að borða -

Dóra: Hvernig gengur Tinna?
Tinna: Bara allt gott



28.mars 2006

Ragnar skreið á maganum um gólfið og sagðist vera krókódíll. Óli og Ægir ætluðu að veiða krókódílinn.
Ragnar Ingi: Ekki veiða mig, ég var með hlaupabólu!



27.mars 2006

Saga: þegar maður fermist, þá talar maður vel um Guð og Jesú í kirkjunni og labbar svo með bók.
Hvernig bók? var spurt
Birgitta Rún: Gestabók



23.nóv. 2005
Árdís Inga: Jólasveinn ég kreisti þig, veiðimaður skýtur mig...!

des.2004
Alexander í góðri sveiflu í kaðlinum: sjáðu nú er ég glæsilegur!

23.nóv.2004

Ragna Stína: Heyriði krakkar er bara allur snjórinn að fara?
Krakkar: Já
Ragna Stína: og hvert fer hann eiginlega?
Birgitta Rún: Hann fer bara upp í loftið!



17.nóv. 2004

Bergsteinn Freyr: AAAAAAARRRRRRRRR ég er tröllið.
Ragna Stína: ohh ég er hrædd við tröllið.
Bergsteinn Freyr: hérna er nammi (og þá er allt búið, ekki lengur hrædd)



16. nóv. 2004

Alexander: Nei, hún Ladna seijil að ég á að vela dládul, eldan mín. Ehddi hús.
Þýðing: Nei, hún Ragna seigir að ég á að vera strákur, elskan mín. Ekki hús.



13.sept. 2006
Verið er að undirbúa hvíld í salnum. Börnin eiga að leggjast á gólfið og mynda hring, en það gengur ekki vel. Kennarinn teiknar þá upp afmyndaðan hring sem líkist hringnum sem börnin eru í. Er þetta hringur? Börnin svara: nei, og reyna að laga hringinn. Kennarinn teiknar þá annan hring sem líkist þeim sem börnin hafa myndað og spyr aftur. Er þetta hringur? Börnin svara: já. Þá spyr kennarinn. Hvað er þetta þá (sýnir myndina af afmyndaða hringnum)? Dagbjartur svarar: þetta er Nashyrningur.

13.sept. 2006
Einar Bjarki: Ég er matæta og nú er ég svangur.

12.sept. 2006

Dagbjartur: Ég er í stykki, það má ekki klukka mig.
Nökkvi: Ég skal sko klukka þig þegar þú kemur úr skápnum, úr stykki.



14.sept. 2006

Bjarni: Nei ég vil ekki borða
Ingólfur: þá verðuru bara matarlaus og þá deyrðu ráðalaus.



12.sept 2006
Dagbjartur Tryggvi var að ganga frá einingakubbunum þegar hann sagði: Ég get ekki þraukað meira!

9.sept. 2006

Ágústa Særós: þú ert sæt Sonja
Sonja Steina: já ég veit það



31. okt 2005
Einar Bjarki: Nú verð ég að taka völdin?
Sara Jenný: Hvað er það?
Einar Bjarki: Það er sá sem ráddar mest

1.júní 2005

Árdís Inga: Veistu hvað hún Guðný getur ekki aftur spilað fótbolta.
Ragna Stína: Nú afhverju ekki?
Árdís Inga: Hún er fótbrotin, sko hérna á hendinni!!!



25. janúar 2005
Elvar: Dóra ætlar þú að hafa þessa bók svona gulu bókina eða rauðu? Þá verður allt í svona bókum!

10. janúar 2005
Árdís Inga: Einhver grafaði í puttann á mér. (það gróf í fingri).

10. janúar 2005

Árdís Inga: Þeir ætla að skilja mig eftir til útlanda! (skilja mig útundan).



10. nóvember 2004
Karl Dúi og Dagbjartur voru í geimskipi úr hollow block kubbum og kölluðu á hvorn annann: komdu andskoti! Litu svo á Ingu kennara og Karl Dúi segir brosandi: Ekki þú!

4. nóvember 2004
Júlía Mjöll: ég heiti Júlía Mjöll Jensdóttir, alveg eins og pabbi minn!

1. nóvember 2004
Árdís Inga: Einu sinni var Þorbjörn ekki til og systir og mamma og pabbi, bara ÉG og þá var ég grenjandi og grátaði og setti bara plástur og þá var ég glöð.

5. nóvember 2004
Sara Jenný og Árdís Inga í kubbunum að byggja, Sara Jenný fer á wc og Árdís fær strangar leiðbeiningar hvað gera skal á meðan. Árdís Inga: úff -róleg!

1. nóvember 2004

Auður Erla: veistu af hverju ég er alltaf að kúka og pissa?
Kamilla Birta: nei?
Auður Erla: það er af því ég er með sprungna blöðru og það er ekkert eðlilegt að vera með sprungna blöðru!



25. október 2004

Karl Dúi: Ég fékk soya mjólk
Auðunn Almar: Af hverju færð þú soya mjólk?
Karl Dúi: Af því að ég er með ómæni fyrir svona mjólk!



25. október 2004

Kamilla Ósk að syngur: gráuð kerling (gráðug kerling).

 



20. október 2004

Jóhann Leó: þetta er súrefnistaskan mín! (setur bakpokann sinn á bakið).
Jóhann Leó: maður verður að vera með súrefnistösku annars getur maður ekki andað á himninum!



30. desember 2004
Alexander: í gamla daga þá ætla ég að sprengja sprengjur. (á gamlársdag).

28. desember 2004
Alexander: ég er að fara að borða árshátíðarmatinn hjá ömmu minni!!!!! (áramóta matinn).

29. desember 2004
Árdís Inga: Heyrðu á ég að segja þér? Þegar ég er búin í leikskólanum og búin að sofa þá fer ég einhversstaðar.

29. desember 2004
Ingólfur og Bersveinn Leó sitja við eldhúsborðið og Ingólfur er eitthvað að babbla við Bergsvein. Bergsveinn lítur sposkur á svip Rögnu kennara -Ingó talar ensku!

16. desember 2004
Karl Dúi: jólakötturinn er bara til í þjóðsögum!

16. desember 2004

Anna Pálína: mamma mín er með hugverk og líður illa.



6. desember 2004
Kamilla Ósk, syngur: Indæla steik hún er að færa upp á stærðar þak! -af hverju fer steik upp á þak?!

1. desember 2004
Kristófer Orri: ég fæ eyrnabólgu, nei ég meina lungnabólgu af því að mér er svo kalt!

30. nóvember 2004
Sandra: langamma mín, hin amman, sem er lifandi, hún á eftir að vera dáin.

12. nóvember 2004

Kamilla Birta: Veistu hver á afmæli í desember?
Inga kennari: Nei, hver?
Kamilla Birta: Nú auðvitað Jesú!



13. október 2004

Gabríel Valtýr: andskotans kallinn!
Inga kennari: hvað segir þú Gabríel?
Gabríel Valtýr: það gætu nú allir hafa sagt þetta!

 



5. ágúst 2004
Guðmundur Dagur: míns er dauður í vatninu!
Auðunn Almar: nehei! Míns er dauðari!

17. nóvember 2004

Kristberg: bang, san, tang
Bergsveinn Leó: líka ensku....
Kristberg: Já og dagur íslenskrar tungu!



30. júlí 2004

Kristberg: Ég er að fara í tónlistarskólann.
Magga kennari: Já, hvað ertu að fara að læra?
Kristberg: Lesa!



31. október 2003
Guðmundur Dagur: Er hann "steinvakandi"?

29. október 2003
Kristófer Orri: maður verður að sýna smá þolinmæði þegar maður bíður eftir spaghettíinu!

29. október 2003
Hjálmar Kári: Ég er svo svangur, að ég er alveg "dolfallin".

2. október 2003
Auður Erla komin í furðuföt og setti pils á höfuðið á sér og hálsfesti þar yfir: Sjáðu ég er þríhyrningur eins og María með barnið!

4. júní 2003
Birta Dís: Auður Erla segir alltaf já við öllu, hún er svo jákvæð.

3. júní 2003
Tómas: Við þurfum ekki vél til að búa eitthvað til, við höfum aðstoðarkonu sem býr til það sem okkur vantar á leikskólann. (Hildur kennari er aðstoðarkonan)

1.02.2005

Saga: Dóra átt þú svona föt!!
(Dóra var í pilsi og kápu!!)



27.01.2005
Kamilla Birta: Það slitnaði eitthvað í líkamanum á ömmu minni. Hún er í gifsi. Það slitnaði "hásíðan!" = hásinin

20.05.2003
Á útisvæðinu.
Antonía Mist: Pabbi Sigga binda hundinn við staurinn, svo hann fjúka ekki. (það var dálítill vindur)

08.05.2003
Krista horfði á Auðunn og sagði: Rosalega er hann sætur!
Auðunn: Þú ert stelpa!

Maí 2003
Eyþór Elí kom nýklipptur í leikskólann og var spurður hvort þetta væri sumarklipping?  “Nei jólaklipping” svaraði hann.

23.04.2003
Saga: Mamma mín heitir Dagný og hún á heima á bókasafninu og Pabbi vinnur bara í skólanum.

09.04.2003
Birta: Ragnheiður þú ert með fjórar hendur.
Ragnheiður: Af hverju segir þú það?
Birta: Af því að ég er RANGREIÐ.

04.03.2003
Tara: Það er ekki bannað að segja þokkalega!!!!
Hulda Rósa: Nei
Tara: Þokkalega!!!

03.03.2003
Krista María: hæ Ragnheiður ég er búin að fá meðal.
Ragnheiður: af hverju?
Krista María: af því að ég er búin að vera eitthvað svo ómöguleg.

21.02.2003
Dæmi um góða mannasiði:  Auður Erla er með dúkku í burðarpoka á bakinu.
Tara: Heyrðu, ég á þessa dúkku!
Auður Erla: Fyrirgefðu, ég var bara að prófa hana.
Tara: O.k.

18.02.2003
Birta Dís: ég er frostungur (rostungur).

17.02.2003
Ríta Kristín sat í rimlunum, rak hendina í og sagði: Ég brótti bein úr mér.

17.02.2003
Guðríður Emma: Ég vil bara fara út þegar Unnur María fer út, hún fær að vera inni af því að hún er með hálsbólgu í...... eyranu....

12.02.2003
Ríta Kristín: ég fór í Reykjavínshöllina í dag.

05.02.2003
Ríta Kristín: skinka er kjöt sem er búið að gera kalt og blautt.

04.02.2003
Gummi og Kristín að þvo sér.  Gummi: “Við erum að vaska okkur”.

Febrúar 2003
Ívar og Antonía voru að hoppa í sófanum.  Karl Dúi var að leika sér að skjóta á þau.  Antonía: Það er bannað að byssa á hann.

03.02.2003
Þröstur og Árni Þór búa til bæat úr stóru trékubbunum.  Þeir eru að útskýra hvað snýr fram og hvað aftur.  Árni:”Þetta eru svalirnar sem maður fer til að reykja”.

Febrúar 2003
Hulda: Auður er amma þín komin frá Florída?
Auður Erla: já amma boobies er komin, hún setur alltaf tennurnar í glas á nóttinnni!

31.01.2003
Auður Erla að perla og Hulda Rósa að tala við hana.
Hulda: hver var að klóra þig?
Auður Erla: Jóhann
Hulda: hvenær gerði hann það, í dag?
Auður Erla: nei á morgun.

31.01.2003
Lovísa Ósk: manstu um daginn þegar ég var að fæða litla systir þá var ég svo spennt að ég hlaupti alveg út um allt.

29.01.2003
Krista María og Borghildur að tala saman.
Borghildur: amma borðar mola á hverjum degi og það er búið að taka allar tennurnar úr henni.
Krista María: vá svona franskar tennur, er hún með svoleiðis.

24.01.2003
Ástþór Ragnar kemur inn úr kuldanum með bros á vör: Bogga sjáðu ég er með “apakinn” (eplakinn)

24.01.2003
Gabríel sýndi Ragnheiði gat (sár á stóru tá) og sagði ég verð að fara til tannlæknis.

06.01.2003
Ríta Kristín: ef ég fæddi á undan þér, þá fer ég áður en þú í skóla.
Krista María: ég fer bara í skóla þegar ég verð tilbúin, takk fyrir.

06.01.2003
Krista María sat við tölvuna og segir það gerist ekkert, gerist ekkert(við Ragnheiði).  Ragnheiður segir ætli hún sé ekki bara frosin.
Krista tekur um tölvuna og segir: Nei hún er ennþá heit.

30.12.2002
Kamilla Ósk: Ég er prinsessan, gullfalleg í kjól.

Desember 2002
Elmar Þór: Það má ekki hafa byssur.  Mann getur skýtið í sig.

19.12.2002
Elmar Þór: Ég er Stökk á staur
Sigríður Eva: Ég er Skyrgómur

17.12.2002
Guðríður Emma: Heyrðu Elmar, þú manst eftir mér þótt þú viljir elta Rítu?

Desember 2002
Bragi: Ég kann að teikna kross, það er bara skakk og skakk.

16.12.2002
Bragi lá undir mottunni á gólfinu og hrópaði: Ég er fastur undir gólfinu og ef enginn kemur þá verð ég að gólfi.

11.12.2002
Guðríður Emma í Vinaminni og fékk litabók lánaða hjá Auði Erlu.  Þá kom Telma og spyr Auði hvort hún megi fá að lita í bókina.  Auður Erla sagði já við því, og þá fór Telma til Guðríðar Emmu og sagði að hún mætti lita í bókina núna og að hún væri búin að panta að lita Mjallhvíti.
Guðríður Emma: það er ekki hægt að panta að lita í bókina, það er bara hægt að panta pizzu og mat.

27.11.2002
Tvær konur voru í heimsókn og Telma sagði við krakkana við borðið: þessar konur eru frá útlöndum.
Guðríður Emma: nei þær eru íslenskar.
Telma: þær eru frá Akureyri og það er í útlöndum.

18.11.2002
Telma Hafrós: Á ég að syngja lag um minn, sem á enga ömmu í Vestmannaeyjum?

18.11.2002
Elvar: Þetta kerti er alveg glæsilegt og þetta er bara fínt.

01.11.2002
Það var heilmikið haglél úti. 
Guðríður Emma: það sko bara nuggets úti, sjáiði!!!!

18.10.2002
Sigríður Eva var að gera sér grímu:  Viltu klippa augun svo ég geti horfið?

08.10.2002
Guðríður Emma: Ég er nú bara ekki í skapi til að hlusta á þetta bull.

08.10.2002
Inga Sól tók spöngina úr hárinu og sagði: Þessi spöng er alveg að fíflast í hárinu mínu, ég get ekki verið í henni.

23.09.2002
Sigríður Eva: Sko, ég er Batman með skinku (skikkju).

04.09.2002
Í samveru yngstu barna í Vinaminni var Antoníu Mist boðin niðurskorin gúrka.  Hún kom við sleipa gúrkuna og sagði svo “ég borða ekki blautan mat”.

29.08.2002
Elmar Þór: Ég fór í verksmiðjuna og sá færibarnið!!!!

26.08.2002
Mörg börn voru í fiskaleik og Aníta Lind kallaði:  Nú fer minn hörmungur í kaf!!!

26.08.2002
Auður Erla gekk um í salnum og sagði:”Nú er þetta í boði”.
Inga segir: átt þú að stjórna hér?
Auður Erla: já ég á að hafa í boði fyrir alla.  Og nú er þetta í boði líka fyrir þig.

20.08.2002
Karen var spurð að því hvenær litla barnið kæmi út úr maganum á mömmu hennar.  Hún svaraði: eftir tvö ár (hann fæddist í september).

Ágúst 2002
Bragi var að teikna og Kamilla Birta ætlaði að taka myndina af honum og skoða.  Bragi varð ekki sáttur við það og varð vondur við Kamillu.  Þá heyrðist í Kristu Maríu: þetta er allt í lagi hún hélt þetta væri landakort.

Júlí 2002
Telma Hafrós: ég á unglingasokka.

Júlí 2002
Elmar: ég er búinn að borða morgunmat heima.
Hulda Rósa: hvað borðaðir þú?
Elmar: svínakjöt.

31.07.2002
Lovísa Ósk: mamma og pabbi segja að það sé fita í osti! Er það rétt???

03.06.2002
Það var búið að smyrja á fat og börnin komu inn úr sólinni og fengu sér brauð og safa.
Ingibjörg Þóra: hva ertu bara orðinn þjónn búinn að gera allt.
Inga: já búin að gera allt nema borða brauðið fyrir ykkur.
Ingibjörg Þóra: heyrðu þú mátt alveg borða brauð fyrir mig.

29.05.2002
Kamilla Birta og Auður Erla voru saman að leika sér.
K: Krúsa mín, hvað ertu að gera?
A: Ekkert mikið.
K: Viltu gera ekkert mikið með mér Krúsa mín?

23.05.2002
Birta og Guðríður Emma að hlusta á Sónötu.  Birta kemur hlaupandi til Huldau Rósu og segir:”Guðríður Emma er orðin alveg ringluð og með hugann í Sónötu, henni líður mjög illa og hún getur ekki hætt að hugsa um hana!!!!!

15.05.2002
Saga sat á wc niðri og Katla átti leið um fyrir framan og hafði mjög hátt.  Þá sagði Saga með stór augu af undrun:”Krakkinn reiður núna”.

07.05.2002
Knútur að tala við Birtu.  “Heyrðu ég á vini í Englandi og þeir tala allir útlensku og ég talaði við þá með höndunum”.

02.05.2002
Tjald í salnum og nokkrir að leika sér saman þar.  Elínora stjórnar þar eins og herforingi:  Ég ætla að fara út í búð og þið lofið að svara símanum ef þið eruð ekki heyrnarskert!!!!!!

29.04.2002
Björgvin bað um kodda fyrir leikinn.  Inga sagði honum að allir koddar væru í þvotti.  Björgvin: Já það er víst lús í öllu hér, hausum og koddum.

29.04.2002
Katla var búin að láta alla viðstadda fá hlutverk í leikriti um Jón Odd og Jón Bjarna en Bragi var aleinn eftir í horninu.  Hvað á ég að gera?  spurði Bragi.
Katla: Þú getur verið ljósnari
Bragi: Hvað er það
Katla: Þú ljósnar um okkur og fólkið í leikritinu.

23.04.2002
Samvera e.h. Börnin eru að syngja Maístjörnuna, þegar Margrét segir: “Ó hve þetta er rómantískt lag”.

23.04.2002
Knútur með derhúfu vegna lúsafaralds.
Knútur: snertiði ekki derhúfuna mína ég vill alls ekki fá lús úr ykkur!

22.04.2002 í Framnesi
Ingibjörg Þóra, Margrét og Krista eru að teikna myndir.  Ingibjörg segir að Margrét hafi gert ljóta mynd, en Margrét er ekki sammála.  Þá segir Krista sem var að söngla nýtt lag: “allir gera fallegt
      sumum finnst það ljótt,
      þegar maður grætur
      líður manni ekki vel”.


18.04.2002
Umræða í samverustund fyrir hádegi, umræðuefni var afmælisdagar og stjörnumerki.  Arnbjörg: Ég er í flugdreka merkinu (sporðdreka).

17.04.2002
Lúsafárið mikla.  Telma: Elmar ef þú ert með húfuna inni þá myglar á þér hárið(og tekur af honum húfuna).
Elmar: En þá kemur lús í hárið mitt.

17.04.2002
Vorum fjórar saman að teikna blóm, Arnbjörg, sóldís, Margrét og Hildur H.  Hildur var að teikna túlípana og Margrét er að herma eftir og segir “ég er að teikna talíbana”.

16.04.2002
Knútur og Ríta að leira og leika sér í svaka mömmuleik.
Knútur: hvers vegna ertu að gréta ljúfan?
Ríta Kristín: mín heitir Fjóla en ekki ljúfa!!!

15.04.2002
Kamilla Birta sat í bláa sófa með hvítt blað fyrir framan sig og las hátt: “Nautakjöt á leikskóla og svo fór kjötið heim að sofa og kom svo aftur og það var gaman”.  Kamilla Birta leit svo upp og sagði:”Það er nú erfitt að læra svona mikið”.

12.04.2002
Birta Dís: Guðríður Emma ertu  klikkuð, þú setur ekki poka yfir höfuðið á þér!
Guðríður Emma: Ég er ekkert klikkuð!
Birta Dís: Nei, ég vissi ekki hvað ég átti að segja, mér brá svo skelfilega þegar ég sá þig!!!!!

09.04.2002
Elmar: ég er algjör aumingi, ég verð að æfa mig í boxi.

02.04.2002
Kamilla Ósk var að hætta með bleiu.  Hún snarast inn á wc, þrífur niður buxurnar sínar og sest og pissar.  Svo sagði hún, ofsalega er ég dugleg.

Mars 2002
Knútur: Hulda Rósa hann Ingvar afi minn var að deyja, hann sofnaði bara og vaknaði ekki aftur.  Þetta eru “slæmar” fréttir finnst þér það ekki?

22.03.2002
Elmar: Fúsi liggur frá, löggan stendur aftan á, allir frá, hér kem ég.

21.03.2002
Kamilla Birta var komin í gallan á leiðinni út.  Kristófer Orri kemur á hlaupum og bendir á Kamillu og segir: þessi stelpa er að fara út!
Kamilla Birta fúl á svip: Nei! ég heitir ekki grút!

19.03.2002
Bragi í salnum: Jæja Inga mín, nú slökkvum við og höfum kósý.

18.03.2002
Auður Erla var spurð að því hvort hún vissi hvað það væri að fara í röð, já hún vissi það.  “Það er Hafnarfjörður”.

13.03.2002
Auður Erla: Hulda Rósa ég er búin að kúka ertu til í að taka af mér kúkinn????

12.03.2002
Auður Erla búin að kúka! Hulda Rósa að skipta á henni.
Brynja: svakaleg lykt er af barninu.
Hulda Rósa: þetta er alveg eins og kjúklingur í karrýsósu.
Auður Erla: ha kjúklingur er hann á boðstólnum?

15.03.2002
Krista: ef maður litar á borðið þá er borðið ljótt.
Margrét Dagmar: það má ekki lita á borðið þú veist það alveg.
Krista: þessi hendi vissi það ekki.

08.02.2002
Ívar og Skúli notuðu tennisspaða fyrir gítara.
Ívar: Skúli þetta er ekkert flott.
Skúli: jú víst.
Ívar: nei hlustaðu, svona spila Rammstein.

07.02.2002
Inga Sól var með búð og seldi allskyns íþróttavörur.
Margrét var með 2 tennisspaða og sagði við Ingu Sól: þú færð 1 spaða og ég fæ 1 hring.
Inga Sól: hvað á ég svo að spaðast?

06.02.2002

Siggi Galdur og Krista María voru í kúrekaleik og Elmar vildi komast í leikinn.  Hann sagði með sinni blíðustu rödd: kúrekamamma ég elska þig.
Krista María: ég elska þig líka, en Siggi er pabbinn!!!!!



Janúar 2002

Í eldhúsinu.  Lovísa Ósk að borða morgunmat og biður Huldu Rósu um vatn að drekka.
Hulda Rósa: viltu ekki mjólk?
Lovísa: nei ég er búin að fá smá mjólk og svo má ég ekki fá meira því pabbi minn sagði að ef ég drekk of mikla mjólk þá breytist ég í belju.



Viðburðadagatal
Viðburðir